Loftbrúin má ekki missa flugið
Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við Loftbrúna valda því miklum vonbrigðum.
Loftbrúin – frá hugmynd að veruleika
Málið stendur mér býsna nærri enda lagði ég mikla vinnu í „skosku leiðina“ svokölluðu á sínum tíma sem síðar varð þekkt undir merkjum Loftbrúarinnar. Í maí 2016 talaði ég fyrst fyrir skosku leiðinni í bæjarstjórn Akureyrar og fylgdi því svo eftir í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar þá um haustið. Hugmyndin var að nýta reynslu Skota af niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa dreifðra byggða og laga hana að íslenskum aðstæðum.

Njáll Trausti við störf sem flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli fyrir nokkrum árum. „Málið stendur mér býsna nærri enda lagði ég mikla vinnu í „skosku leiðina“ svokölluðu á sínum tíma sem síðar varð þekkt undir merkjum Loftbrúarinnar. Í maí 2016 talaði ég fyrst fyrir skosku leiðinni í bæjarstjórn Akureyrar ... “ segir hann í greininni.
Í maí 2017 skipaði þáverandi samgönguráðherra, Jón Gunnarsson, starfshóp til að vinna að þessu máli og veitti ég hópnum formennsku. Sú vinna hélt áfram í ráðherratíð Sigurðar Inga Jóhannssonar og eftir um átján mánaða vinnu við lok nóvember 2018 skilaði hópurinn skýrslunni Uppbygging flugvallakerfisins og efling innanlandsflugsins sem almenningssamgangna. Verkefnið snerist bæði um að bæta aðgengi landsbyggðarfólks að innanlandsflugi og tryggja uppbyggingu flugvallakerfisins.
Við lögðum til að íbúar skilgreindra svæða gætu notið allt að 50% niðurgreiðslu flugfargjalda í einkaerindum. Þannig lögðum við mikilvægan grunn að Loftbrúnni, sem hleypt var á stokk 9. september 2020 með 40% afslætti af flugfargjöldum. Það var afar ánægjulegt að sjá málið verða að veruleika eftir margra ára vinnu.
Hugmyndir innviðaráðherra auka kostnað
Nú hefur Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, lagt til að niðurgreiðslan sem í Loftbrúnni felst verði föst krónutala í stað hlutfalls, 7.000 krónur á fluglegg í stað 40% af fargjaldi. En hvaða áhrif hefði sú breyting á ferðakostnað íbúa landsbyggðarinnar?
Tökum einfalt dæmi. Í dag jafngildir 40% afsláttur af 20.000 króna fargjaldi 8.000 krónum. Af 30.000 króna fargjaldi er afslátturinn 12.000 krónur, og svo framvegis. Föst 7.000 króna niðurgreiðsla á 30.000 króna fargjaldi myndi því hækka kostnað farþega um 5.000 krónur á fluglegg, eða 10.000 krónur fram og til baka. Fyrir fjögurra manna fjölskyldu þýðir þetta 40.000 krónur aukalega fyrir eina ferð.
Þetta geta augljóslega orðið upphæðir sem skipta fólk máli, sér í lagi þau sem þurfa t.d. að ferðast með skömmum fyrirvara og á þess vegna síður kost á að kaupa sér ódýrasta fargjaldið. Föst krónutala rýrnar jafnframt að verðgildi ef hún tekur ekki breytingum samhliða verðlagi.
Upphafleg markmið verða að vera leiðarljós
Framtíðarþróun Loftbrúarinnar verður að taka mið af upphaflegu markmiðunum hennar um að tryggja jafnari búsetuskilyrði og betra aðgengi að miðlægri þjónustu. Við eigum að efla innanlandsflugið sem mikilvægan hluta almenningssamgangna og tryggja að stuðningurinn haldi gildi sínu fyrir fólkið sem á honum þarf að halda. Sterkar byggðir og greiðar samgöngur fara saman, nú sem fyrr.
Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
Indverskur matur og kvíðaspurningin
Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna
Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað