Þreföld tvenna Emmu í stórsigri Þórs
Öruggur sigur Þórs var niðurstaðan í körfuboltaleik gærdagsins þegar Þór tók á móti liði Selfyssinga í næstefstu deild kvenna, Bæjarins beztu deildinni. Lokatölur urðu 107-79. Emma Karólína Snæbjarnardóttir átti enn einn stjörnuleikinn, náði þrefaldri tvennu eins og það heitir á körfuboltamáli og var með frábæra skotnýtingu.
Fyrsti leikhlutinn var nokkuð jafn, en Þór þó með forystuna allan tímann, þriggja stiga munur að honum loknum. Um miðjan annan leikhlutann kom svo góður sprettur hjá Þórsliðinu, sem jók muninn í 17 stig þegar stutt var eftir af fyrri hálfleiknum. Þennan mun gáfu Þórsarar aldrei eftir, en munurinn 13 stig að loknum fyrri hálfleiknum.
Það dró síðan nokkuð af Selfyssingum í seinni hálfleiknum enda léku þær án hinnar bandarísku Kennedi Watkins, sem var í leikbanni. Hún hefur skorað að meðaltali 24,8 stig í leik fyrir Selfossliðið og munar um minna þegar hennar nýtur ekki við.
Þriðji leikhlutinn var frábær hjá Þórsliðinu, sem skoraði 35 stig og jók muninn jafnt og þétt. Mestur varð munurinn 34 stig, 82-48, en 30 stigum munaði fyrir lokafjórðunginn og 28 stigum þegar upp var staðið.
Þór - Selfoss (19-16) (29-19) 48-35 (35-18) (24-26) 107-79
Það er varla hægt að skrifa um þennan leik án þess að skoða tölfræðina hjá Emmu Karólínu. Hún var með frábæra skotnýtingu, 11 af 15 í opnum leik (73%), þar af voru 5 af 7 í tveggja stiga skotum (71%) og 6 af 8 í þriggja stiga skotum (75%). „Versta“ nýtingin var í vítunum, 4 af 6 (66%). Þegar upp var staðið hafði Emma skorað 32 stig, tekið 11 fráköst og átt 10 stoðsendingar, sem skilaði henni 49 framlagspukntum. Hún spilaði þó ekki nema 32 mínútur. Ksenija Kuzmanovic hefði einnig átt skilið að vera maður leiksins, skoraði 30 stig. Hennar naut ekki við í síðasta leik þar sem hún var í landsliðsverkefni, en það kom ekki að sök þá.
Hjá Selfyssingum var það Mariana Duran sem var mest áberandi, skoraði 27 stig, tók 12 fráköst og átti sex stoðsendingar.
Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:
Þór
Emma Karólína Snæbjarnardóttir 32/11/10 (49 í framlag), Ksenija Kuzmanovic 30/5/3, Nile Miller 19/15/4, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 9/7/0, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 9/3/1, María Sól Helgadóttir 5/2/1, Kristný Halla Bragadóttir 3/1/0, Karen Lind Helgadóttir 0/4/2, Vaka Bergrún Jónsdóttir 0/2/1.
Selfoss
Mariana Duran 27/8/12, Valdís Una Guðmannsdóttir 17/2/2, Anna Katrín Víðisdóttir 14/2/2, Heiður Hallgrímsdóttir 8/9/2, Sigríður Svanhvít Magnúsdóttir 7/5/0, Perla María Karlsdóttir 3/3/2, Sigríður Elva Jónsdóttir 2/1/0, Eva Rún Dagsdóttir 1/5/3. Elín Þórdís Pálsdóttir komst ekki á blað.
Með sigrinum fór Þórsliðið upp að hlið hins Þórsliðsins, frá Þorlákshöfn, en bæði liðin hafa unnið sex leiki af fyrstu sjö. Sigurinn í dag var sjötti sigur Þórs í röð.
Næst:
- Ásvellir í Hafnarfirði
Laugardagur 28. nóvember kl. 13
Haukar u - Þór
Við eigum að vera við stýrið!
Erum við ekki í sama liði?
Tíu milljarða halli
Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?