Fara í efni
Umræðan

Handbolti: KA/Þór nálægt sigri gegn ÍBV

Hver á boltann? Agatha Kjærbæk Djurhuus (nr. 13) og Eyjakonan Andrea Jacobsen hafa báðar hönd á knettinum en Andrea stendur inni í teignum. Mynd: Ármann Hinrik.

Þrátt fyrir að hafa verið með forystuna stóran hluta leiksins þurfti KA/Þór að lokum að sætta sig við tap gegn ÍBV í viðureign liðanna í efstu deild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í KA-heimilinu í gær. Lokatölur urðu 35:32 gestunum í hag eftir að KA/Þór hafði verið 19:16 yfir í leikhléi.

Fyrirfram hefðu flestir líklega spáð Eyjakonum öruggum sigri í leiknum, enda eru þær í 2. sæti deildarinnar og voru með 15 stig af 18 mögulegum eftir fyrstu 9 umferðirnar. KA/Þór hefur hins vegar átt frekar erfitt uppdráttar það sem af er móti og aðeins náð 4 stigum. En þær sýndu það hins vegar í gær að þær geta staðið uppi í hárinu á hvaða liði sem er og hefðu með örlítilli heppni unnið þennan leik.

Eftir jafnar upphafsmínútur skoraði KA/Þór 4 mörk í röð og breytti stöðunni úr 8:7 fyrir ÍBV í 11:8 sér í vil. Þessi forysta hélst út fyrri hálfleikinn, mest munaði fjórum mörkum í stöðunni 14:10 en staðan í leikhléi var 19:16. 

Þegar um 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik voru gestirnir hins vegar búnir að jafna leikinn í 24:24, með þremur mörkum í röð. ÍBV seig síðan framúr og þegar staðan var orðin 29:26 fyrir ÍBV héldu margir að úrslitin væru ráðin. Lydía Gunnþórsdóttir jafnaði hins vegar leikinn í 29:29 með þremur mörkum á tveimur mínútum og leikurinn í járnum þegar 10 mínútur voru eftir. ÍBV komst aftur yfir og í þetta sinn náði KA/Þór ekki að elta og gestirnir tryggðu sér 35:32 sigur, sem var eflaust talsvert torsóttari en þær bjuggust við.

Góð frammistaða sem hefði verðskuldað stig

KA/Þór gekk illa að ráða við landsliðskonuna Söndru Erlingsdóttur í liði ÍBV en hún var langatkvæðamest gestanna með 12 mörk, auk þess að gefa 9 stoðsendingar. Hjá heimastúlkum fór Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir hamförum í markinu, varði 16 skot eða 32% þeirra sem hún fékk á sig. Hins vegar töpuðust allt of margir boltar í sókninni og ÍBV var með 11 stolna bolta en KA/Þór aðeins 2. Frammistaðan á löngum köflum í leiknum var hins vegar góð og ÍBV þurfti að hafa verulega fyrir sigrinum, sem einhverjir héldu að yrði líklega auðsóttur.

Næsti leikur KA/Þórs er útileikur gegn toppliði Hauka sunnudaginn 13. desember og síðasti leikur fyrir jólafrí er síðan heimaleikur gegn ÍR fimmtudaginn 17. desember.

Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 7 (3 víti), Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 5, Herdís Eiríksdóttir 4, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 3, Lenka Ratvajská 3, Agatha Kjærbæk Djurhuus 2, Joan Rúnadóttir Johannessen 2 (1 víti), Katrín Vilhjálmsdóttir 1.

Varin skot: Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 16, Ástrós Bender Mikaelsdóttir 1 (1 víti).

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 12 (3 víti), Amelía Dís Einarsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 5, Ásta Björt Júlíusdóttir 4 (1 víti), Andrea Jacobsen 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2.

Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 7, Cornelia Linnea J Hermansson 2.

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30