Fara í efni
Umræðan

Kvennalið Akureyrar áberandi í dag

Fimm leikir eru á dagskrá Akureyrarliða í dag, tveir útileikir í blaki, heimaleikur KA/Þórs í handbolta, heimaleikur hjá íshokkíkonum í SA og körfuboltakonum í Þór. 


  • Blak – Blaklið KA í efstu deildum karla og kvenna, Unbroken-deildunum, fara bæði í Mosfellsbæinn í dag og mæta Aftureldingu. Karlaliðin spila á undan, en þar er KA í 5. sæti deildarinnar með átta stig og Afturelding í 6. sætinu með fjögur stig. Bæði liðin nokkuð frá toppbaráttunni í stigum talið, enn sem komið er. Kvennalið sömu félaga mætast einnig, og þar er KA einnig sæti ofar en Afturelding. KA er í 2. sæti Unbroken-deildar kvenna með 13 stig og Afturelding í 3. sætinu með 11 stig.
  • Handbolti – Vikan verður annasöm hjá handboltakonunum í KA/Þór því þær fá stutta hvíld eftir bikarleikinn við Fjölni á miðvikudag. Strax í dag er komið að leik í Íslandsmótinu. Eyjakonur í ÍBV koma norður og mæta KA/Þór í 10. umferð Olísdeildarinnar. Eyjakonur geta verið erfiðar við að eiga, eins og þær sýndu á dögunum þegar þær voru fyrstar til að hirða stig af toppliði Hauka með 31-31 jafntefli í Hafnarfirði. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 15 stig úr fyrstu níu leikjunum, en KA/Þór er í 7. sætinu með fjögur stig. Bæði lið spiluðu í fyrstu umferð bikarkeppninnar á miðvikudag.
  • Íshokkí – Hokkíkonurnar í Skautafélagi Akureyrar hafa byrjað keppnistímabilið af krafti og eru efstar í Toppdeildinni með 13 stig úr fyrstu fimm leikjum sínum. Reykjavíkurfélögin eru bæði með fjögur stig, Fjölnir úr fjórum leikjum og SR úr fimm. SA hefur unnið fjóra leiki og tapað einum eftir framlengingu og vítakeppni. Það var gegn SR, en þessi lið mætast einmitt í Skautahöllinni á Akureyri í dag.
  • Körfubolti – Seinni leikur kvennaliðs Þórs í körfubolta í þessari viku er á dagskránni í dag þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Þar má búast við jöfnum og spennandi leik. Þessi lið eru í 2. og 3. sæti deildarinnar, bæði með fimm sigra í sex leikjum. Þór úr Þorlákshöfn er í toppsætinu með sex sigra í sjö leikjum, eina liðið sem hefur sigrað Þór frá Akureyri og Selfoss er eina liðið sem hefur sigrað Þór úr Þorlákshöfn, og í báðum tilvikum munaði aðeins tveimur stigum.

  • Blak
    Unbroken-deild karla
    Íþróttahúsið að Varmá kl. 13:30
    Afturelding - KA

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    Íþróttahúsið að Varmá kl. 15:30
    Afturelding - KA

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 10. umferð
    KA-heimilið kl. 15:30
    KA/Þór - ÍBV

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
    Þór - Selfoss

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30