Fara í efni
Umræðan

Handbolti: KA/Þór í 8-liða úrslit bikarsins

Sólveig Lára Kristjánsdóttir var markahæst gegn Fjölni með 9 mörk. Mynd: Ármann Hinrik.

KA/Þór komst í 8-liða úrslit bikarkeppni kvenna í handknattleik, Powerade-bikarsins, með auðveldum 37:24 sigri á Fjölni á útivelli í gærkvöld. Staðan í leikhléi var 18:8 fyrir KA/Þór og mótspyrna heimaliðsins var ekki mikil en Fjölnir er um miðja næstefstu deild.

KA/Þór skoraði fyrstu fimm mörk leiksins og í stöðunni 8:4 komu sjö norðlensk mörk í röð. Staðan 15:4 eftir rúmar 20 mínútur og úrslitin í raun ráðin. Hálfleikstölur 18:8.

Seinni hálfleikur var mun jafnari og lengst af munaði 10-12 mörkum á liðunum. Lokatölur 37:24 KA/Þór í vil og farmiðinn í 8-liða úrslitin klár. Síðasti leikur 16-liða úrslitanna fer fram í kvöld og 8-liða úrslitin verða leikin í byrjun febrúar á næsta ári.

Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 9, Lydía Gunnþórsdóttir 8, Lenka Ratvajská 6, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Joan Rúnadóttir Johannesen 5, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 2, Herdís Eiríksdóttir 2.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 6, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 5.

Mörk Fjölnis: Sara Kristín Pedersen 7, Hildur Sóley Káradóttir 4, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 4, Sólveig Ása Brynjarsdóttir 3, Berglind Benediktsdóttir 2, Signý Harðardóttir 2, Katrín Hallgrímsdóttir 1, Oddný Björg Stefánsdóttir 1.

Varin skot: Oddný Björg Stefánsdóttir 11, Sara Xiao Reykdal 5.

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30