Aron Einar í 113. og síðasta landsleiknum, gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli á mánudaginn. Hann bar fyrirliðabandið síðustu mínúturnar en telst þó ekki fyrirliði í þessum söguleika leik. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Landsliðsferli knattspyrnukappans Arons Einars Gunnarssonar lauk á mánudagskvöldið, sem varla hefur farið framhjá mörgum. Þar jafnaði hann landsleikjamet Birkis Bjarnasonar eins og fjallað hefur verið um en meðal þess sem kemur í ljós, þegar ferillinn er gerður upp, er að Aron Einar hefur verið fyrirliði í 13% leikja A-landsliðs Íslands frá upphafi, meira en tvöfalt oftar en nokkur annar!
Aron Einar hefur verið fyrirliði landsliðsins í 74 leikjum af 570. Það er mögnuð tölfræði en þeir sem næstir koma, Atli Eðvaldsson og Eiður Smári Guðjohnsen, voru fyrirliðar í 31 landsleik hvor. Þessar upplýsingar hefur akureyri.net frá Víði Sigurðssyni íþróttafréttamanni og höfundi bókarinnar Íslensk knattspyrna í rúmlega fjóra áratugi.
- Leikir A-landsliðs Íslands eru orðnir 570 sem fyrr segir, síðan sá fyrsti fór fram árið 1946. Aron Einar og Birkir hafa því tekið þátt í 19,8% allra landsleikja frá upphafi!

EM 2016 og HM 2018 Fyrsti leikur Íslands á EM í Frakklandi var gegn Portúgal í Saint-Etienne og fyrsti leikur á HM í Rússlandi gegn Argentínu. Báðum leik 1:1 og hér er Aron með „starfsbræðrum“ sínum í þeim sögulegu leikjum, tveimur af bestu fótboltamönnum sögunnar, fyrirliðunum Cristiano Ronaldo og Lionel Messi. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Viðureign Íslands og Lúxemborgar á Laugardalsvelli á mánudaginn var 113. landsleikur Arons og þar með jafnaði hann leikjamet annars Akureyrings, Birkis Bjarnasonar eins og áður hefur komið fram. Birkir lék 113. og síðasta leikinn með landsliðinu árið 2022 og þeir Aron voru vitaskuld samherjar þar í mörg ár, m.a. á eftirminnilegum stórum, Evrópumótinu í Frakklandi 2016, þar sem Birkir gerði einmitt fyrsta mark Íslands, og á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018.
- Aron Einar var fyrst fyrirliði Íslands 27. maí árið 2012, í vináttuleik gegn Frökkum sem fram fór á Stade du Hainaut í borginni Valenciennes. Íslendingar komust í 2:0 með mörkum Birkis Bjarnasonar og Kolbeins Sigþórssonar en töpuðu 3:2.
- Þetta var þriðji leikur Íslands undir stjórn sænska þjálfarans Lars Lagerbäck og sá fyrsti þar sem Aron var í byrjunarliðinu eftir að Lars tók við. Hann kom inn á af varamannabekknum í leiknum á undan, gegn Svartfjallalandi í Podgorica í lok febrúar.
- Sölvi Geir Ottesen, núverandi þjálfari Víkings, var fyrirliði gegn Svartfjallalandi en ekki með gegn Frökkum vegna meiðsla.
- Aron Einar var 23 ára þegar hann var fyrirliði gegn Frökkum leikjahæstur íslensku strákanna. Þetta var 27. landsleikur hans.
- Sölvi Geir var einnig meiddur í næsta leik, vináttuleik gegn Svíþjóð. Aron Einar var aftur fyrirliði þá og var svo formlega skipaður fyrirliði um sumarið áður en undankeppni heimsmeistaramótsins hófst, að því er Víðir Sigurðsson segir í Íslenskri knattspyrnu það ár.
- Aron Einar var fyrirliði landsliðsins í síðasta skipti 31. mars á þessu ári, í vináttuleik (1:1) gegn Haiti sem fram fór á BMO vellinum í kanadísku borginni Toronto.

Aron Einar eftir ógleymanlegan sigurleik (2:1) gegn Englendingum í 16-liða úrslitum Evrópumótsins, í frönsku borginni Nice 27. júní 2016. Mynd: Skapti Hallgrímsson
OFTAST FYRIRLIÐAR A-LANDSLIÐS KARLA
Upplýsingar úr viskubrunni Víðis Sigurðssonar íþróttafréttmanns.
- Aron Einar Gunnarsson, 74 leikir – 13% landsleikja Íslands frá upphafi
- Atli Eðvaldsson, 31 leikur – 5,4%
- Eiður Smári Guðjohnsen, 31 leikur – 5,4%
- Guðni Bergsson, 30 leikir – 5,3%
- Jóhannes Eðvaldsson, 27 leikir – 4,7%
- Ríkharður Jónsson, 24 leikir – 4,2%
- Hermann Hreiðarsson, 24 leikir – 4,2%
- Marteinn Geirsson, 22 leikir – 3,9%