Fara í efni
Umræðan

Þórunn Egilsdóttir hættir á Alþingi

Þórunn Egilsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og þingflokksformaður, tilkynnti í morgun að hún verður ekki í framboð til Alþingis í kosningunum á þessu ári vegna veikinda.

Þórunn birti eftirfarandi yfirlýsingu á Facebook síðu sinni í morgun:

„Ég hef setið á þingi fyrir Framsóknarflokkinn síðan 2013. Ég leiddi framboðslista flokksins í Norðaustukjördæmi við síðustu kosningar og er þingflokksformaður. Það hefur verið góður tími og lærdómsríkur í starfi. Í upphafi árs 2019 greindist ég með brjóstakrabbamein og fór í gegnum stranga meðferð. Það ferli tókst vel og ég tók brött aftur til starfa síðastliðið vor enda meinið horfið. Ég var full bjartsýni, trúði að þetta væri farið og hugðist halda ótrauð áfram. Ég var sömuleiðis full orku og mig langaði að láta áfram til mín taka á þessum vettvangi og gefa kost á mér til þess að leiða framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu næsta kjörtímabil. Framsóknarflokkurinn hefur komið miklu til leiðar með samvinnu og áræðni. Samvinnuhugsjónin, félagsleg gildi og mikilvægi landbúnaðar og byggðar í landinu öllu eiga fullt erindi í stjórnmálin, nú sem aldrei fyrr. Þar er Framsóknarflokkurinn í lykilhlutverki.

Í lok árs 2020 fór ég að finna fyrir óþægindum og rannsóknir bentu til að eitthvað þyrfti að skoða betur. Þá kom í ljós að lifrin starfaði ekki eðlilega. Meinið hefur tekið sig upp að nýju en brýnt er að vera bjartsýn. Maður verður alltaf að horfa fram á við. Og maður má aldrei missa vonina. Aldrei. Framboð til Alþingis verður hins vegar að bíða betri tíma. Ég mun því ekki gefa kost á mér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Við félagshyggju- og samvinnufólk eigum gott fólk með mikla reynslu og skýra sýn sem vill láta gott af sér leiða og er tilbúið í verkefnið. Ég vona og veit að okkur ber gæfa til að starfa saman enda er það lykillinn að árangri.“

Fyrir hvað á Akureyri að standa?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
14. mars 2026 | kl. 18:00

Gamla, góða Akureyri

Þorleifur Ananíasson skrifar
13. mars 2026 | kl. 10:00

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30

„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 07:00

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Þórhallur Jónsson skrifar
11. mars 2026 | kl. 16:45

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00