Þór/KA fer í umspil um að forðast fall
Þór/KA beið lægri hlut gegn FH í efstu deild kvenna, Bestu deildinni, í dag þegar liðin áttust við í Hafnarfirði. Lokatölur urðu 2:1 FH í vil og úrslitin þýða að Þór/KA þarf annað árið í röð að fara í umspil fjögurra neðstu liða deildarinnar um að forðast fall úr deildinni. Þór/KA þurfti nauðsynlega sigur í leiknum til að lyfta sér upp í 6. sætið og þar með komast í umspil efri hluta deildarinnar.
FH réði ferðinni í fyrri hálfleik en Þór/KA varðist mjög vel og þrátt fyrir að heimaliðið væri mun meira með boltann tókst þeim ekki að koma sér í nein hættuleg færi. Það var því gegn gangi leiksins þegar Erin Flurey kom Þór/KA yfir á 23. mínútu. Eftir lipurt samspil á hægri kantinum fékk Amalía Árnadóttir boltann og sendi góða sendingu inn á markteig þar sem Erin var einhverra hluta vegna alein í heiminum og stangaði boltann framhjá Aldísi Guðlaugsdóttur í markinu.

Erin Flurey, sem hér er með boltann í fyrri leiknum gegn FH í sumar, gerði mark Þórs/KA í Hafnarfirði í dag. Mynd: Ármann Hinrik
Dauðafæri Erin fór forgörðum
Á 36. mínútu munaði minnstu að Erin næði að auka forystuna. Hún stal boltanum af varnarmanni og var komin ein gegn Aldísi sem kom út á móti og náði að verja. Erin fékk boltann aftur en flýtti sér aðeins of mikið og skot hennar fór vel yfir markið. Dauðafæri, því þótt tveir varnarmenn væru mættir þá lá Aldís markvörður lá á jörðinni og Erin hefði getað tekið sér meiri tíma.
FH jafnaði metin á 40. mínútu og kannski örlítill heppnisstimpill yfir því marki. Hafrún Birna Helgadóttir átti skot langt fyrir utan teig sem breytti um stefnu af varnarmanni og fór þaðan í netið. Alessandra Augur markvörður var lögð af stað í hitt hornið. 1:1 var staðan í leikhléi.
Heimaliðið hélt áfram að ráða ferðinni eftir hlé og á 58. mínútu náði FH forystunni. Ingibjörg Magnúsdóttir fékk langa sendingu frá vinstri þar sem hún var stödd hægra megin í vítateignum. Hún gerði sér lítið fyrir, lagði boltann fyrir sig og sendi hann með hárnákvæmu skoti efst í fjærhornið.
FH sleppti ekki tökunum á leiknum
Sem fyrr var FH með flest tök á leiknum en góð varnarvinna liðs Þórs/KA kom í veg fyrir að FH næði að komast í hættuleg markfæri. Að sama skapi voru sóknarlotur Þórs/KA fáar og frekar bitlausar en minnstu munaði þó að þær jöfnuðu metin á 76. mínútu. Margrét Árnadóttir kom sér í gott færi í vítateignum slakt skot hennar fór framhjá fjærstönginni.
Lokatölur 2:1 FH í vil, sem þar með komst í efsta sæti deildarinnar, um stundarsakir í það minnsta. Þór/KA þarf hins vegar að gera sér að góðu að fara í umspil fjögurra neðstu liða deildarinnar ásamt Reykjavíkurliðunum Fram, Val og Víkingi, þar sem tvö neðstu liðin munu falla úr deildinni. Endanleg lokastaða liðanna í deildinni ræðst á morgun þegar síðustu leikir umferðarinnar fara fram en fyrsta umferð umspilsins verður leikin dagana 18. og 19. september.
Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir (Agnes Birta Stefánsdóttir 89.), Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir (Birgitta Rún Finnbogadóttir 77.) – Lauren Adrienne Lapomarda (Halla Bríet Kristjánsdóttir 89.), Amalía Árnadóttir (Hulda Ósk Jónsdóttir 63.), Margrét Árnadóttir, Elizabeth Moore, Hildur Anna Birgisdóttir (Karen María Sigurgeirsdóttir 77.) – Erin Flurey.
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!