Fara í efni
Umræðan

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Í ár fögnum við 164 ára afmæli Akureyrarbæjar sem hefur í gegnum árin þróast frá því að vera lítið verslunarþorp yfir í öflugt og fjölbreytt samfélag sem veitir þjónustu langt út fyrir bæjarmörkin. Við erum þjónustumiðstöð fyrir Norðurland allt og höfum ákveðnum borgarskyldum að gegna gagnvart landsmönnum öllum. Við erum sjávarútvegsbær með sterkar rætur, mikilvægt athafnasvæði fjölbreytts atvinnulífs og sífellt vaxandi miðstöð norðurslóðamála. Við erum skólabær sem spannar allan menntaskalann, við höfum mikilvægt hlutverk í heilbrigðisþjónustu, við erum íþróttabær með fyrirmyndar íþróttaaðstöðu. Síðast en ekki síst erum við menningarbær með metnaðarfullum menningarstofnunum og kraftmiklu listasamfélagi.
 
Það er ekki síst þessi fjölbreytileiki sem gerir Akureyrarvöku að jafn glæsilegri afmælishátíð og raun ber vitni. Dagskráin hefst í dag og á morgun, sjálfan afmælisdag sveitarfélagsins, nær hátíðin hápunkti sínum.
 
Akureyrarvaka og áherslur hennar sýna okkur á skýran hátt hver við erum. Á Akureyri er samfélag hæfileikaríks fólks með ólíkan bakgrunn, ólíka sýn og ólík áhugamál. Í dagskránni má til að mynda finna íþróttaviðburði, tónleika, listsýningar, froðudans, ljóðaupplestur, skemmtun fyrir alla fjölskylduna, vísbendingar um sögu bæjarins og hugmyndir um framtíðina. Á dagskránni eru ríflega hundrað viðburðir sem endurspegla á einstaklega skýran hátt breiddina, sköpunarkraftinn og fjölbreytnina í samfélaginu okkar.
 
Mín hvatning til íbúa og gesta okkar á Akureyrarvöku er einföld: kynnið ykkur dagskrána á vefnum akureyrarvaka.is, veljið nokkra viðburði sem þið viljið ekki missa af og gefið ykkur svo tíma til að vera á ferðinni fram á kvöld og njótið stemmningarinnar. Leyfið Akureyrarvöku einfaldlega að koma ykkur á óvart.
 
Góða skemmtun og sjáumst á Akureyrarvöku!
 
Berglind Ósk Guðmundsdóttir er bæjarstjóri á Akureyri

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15