Dagur Árni byrjaði með látum og KA vann
KA sigraði HK örugglega í Kópavogi í gærkvöldi, 37:28, í fyrsta leik efstu deildar Íslandsmótsins í handbolta – Olís deildinni. „Nýliðinn“ í KA-liðinu, Dagur Árni Heimisson, stal senunni í Kórnum að þessu sinni; hann kom til uppeldisfélagsins í sumar eftir einn vetur í herbúðum Vals í Reykjavík og fór á kostum í sókninni.
Dagur Árni gerði fyrsta mark leiksins þegar 33 sekúndur voru liðnar, eftir góða leikfléttu og gegnumbrot. Hann gaf þar með tóninn fyrir kvöldið en þegar upp var staðið hafði Dagur Árni gert 12 mörk úr 14 skotum og átt fjórar stoðsendingar. Hann skoraði úr öllum fimm vítaskotum sem KA fékk í leiknum.
KA hafði yfirhöndina framan af en HK komst í fyrsta sinn yfir, 10:9, þegar tæpar 20 mín. voru liðnar. Það reyndist í eina skiptið sem heimaliðið hafði forystu, tveimur mörkum munaði í hálfleik (15:13) og KA-menn hleyptu HK-ingum aldrei alvarlega nálægt sér. Munurinn var reyndar oftast ekki nema tvö til þrjú mörk fram í miðjan seinni hálfleik en eftir það jókst bilið hægt og bítandi og munurinn var níu mörk í lokin.
Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 12 (þar af 5 víti), Jens Bragi Bergþórsson 6, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Einar Birgir Stefánsson 4, Magnús Dagur Jónatansson 3, Morten Linder 3, Dagur Gautason 2, Ágúst Elí Björgvinsson 1, Baldur Thoroddsen 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 12 (32%), Bruno Bernat 2 (40%).
Mörk HK: Andri Þór Helgason 7 (þar af 3 víti), Aron Dagur Pálsson 4, Trúgvi Hávardsson 3, Örn Alexandersson 3, Leó Snær Pétursson 2 (þar af 1 víti), Tómas Bragi Lorriaux Starrason 2, Alex Máni Oddnýjarson 2, Orfeus Andreou 2, Gunnar Dan Hlynsson 2, Bjarki Freyr Sindrason 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 4 (14%).
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!
Óskhyggjan og veruleikinn
Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?