Fara í efni
Umræðan

Lykilatriðið fyrir okkur er stöðugleiki

Daniel Birkelund, þjálfari Þórs fyrir miðri mynd. Lengst til vinstri er Gunnar Líndal aðstoðarþjálfari, þá markvörðurinn Nicola Radovanovic og standandi hægri megin er Sigurður Ringsted Sigurðsson. Mynd: Ármann Hinrik

„Allt annað en að komast í úrslitakeppnina í vetur yrði vonbrigði,“ segir Daniel Birkelund, þjálfari karlaliðs Þórs í handbolta, aðspurður um væntingar Þórsara fyrir komandi keppnistímabil. Liðinu er spáð áttunda sæti Olísdeildarinnar í vetur í spá fyrirliða og þjálfara, einu sæti ofar en liðið endaði í deildinni á síðasta tímabili.

  • Fyrsti leikur Þórs í Olísdeildinni er útileikur gegn Fram í dag, laugardaginn 5. september
  • Fyrsti heimaleikurinn er í 2. umferð gegn HK fimmtudagskvöldið 10. september kl. 19
  • Í þriðju umferðinni er það svo stóri slagurinn – KA-menn og Þórsarar glíma í KA-heimilinu miðvikudaginn 16. september kl. 19

Stuðningsmenn Þórs sköpuðu oft skemmtilega stemningu á heimaleikjum liðsins síðasta vetur. „Við erum bara spenntir að byrja aftur, þetta hefur verið löng bið. Við spiluðum síðast keppnisleik snemma í mars, þannig að það verður gott að komast aftur út á völlinn,“ segir Daniel Birkelund, þjálfari Þórs.

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Þórs frá síðasta tímabili og segir Daniel að hópurinn sé nú þéttari og breiðari en í fyrra. Meðal annars hafa fjórir Danir bæst við leikmannahópinn og reyndir leikmenn lagt skóna á hilluna. Hann gerir ekki ráð fyrir frekari breytingum á hópnum áður en keppnistímabilið hefst.  „Ég myndi segja að staðan á hópnum sé góð. Við erum  með breiðari hóp en við vorum með. Það gefur okkur fleiri möguleika og gerir okkur kleift að hvíla leikmenn og rótera þeim meira. Eins og staðan er núna er ég sáttur við hópinn sem við erum með og geri ekki ráð fyrir að við bætum við fleiri leikmönnum,“ segir Daniel.

Nýir leikmenn og ungir Þórsarar

Ein af áherslum undirbúningstímabilsins hefur verið að koma nýjum leikmönnum inn í hópinn og móta leikstíl liðsins, bæði innan vallar og utan. „Það hefur auðvitað verið mikilvægt að koma nýju leikmönnunum inn í hópinn og finna út hvernig við viljum spila. Nýju leikmennirnir hafa komið með aukin gæði og nýjar hugmyndir,“ segir Daniel og er ekki síður sáttur með framlag yngri leikmanna Þórs sem fá fleiri tækifæri. „Ég er líka mjög ánægður með hvernig okkar yngri leikmenn hafa stigið inn í meistaraflokkinn. Þeir koma með ákveðið hungur og orku sem hefur verið góð fyrir allan hópinn.“


Danirnir fjórir sem gengu til liðs við Þór í sumar: Bertram Simonsen, William Skovsager, Mikkel Jensen og Oliver Christensen.

Langt undirbúningstímabil

Undirbúningur Þórsara fyrir tímabilið hefur verið ansi langur. Liðið lauk keppni snemma í vor eftir að hafa ekki náð sæti í úrslitakeppninni og æfingar hófust aftur 20. apríl. „Þetta hefur verið langt undirbúningstímabil, en það er það sem gerist þegar maður lýkur keppni snemma eftir að hafa misst af úrslitakeppninni,“ segir Daniel en Þór hafnaði í 9. sæti í deildinni á síðasta tímabili og missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni.

Að sögn Daniels fór vorið að miklu leyti í að byggja upp líkamlegan styrk leikmanna en í júlí og ágúst færðist áherslan meira yfir á nýju leikmennina og leikskipulag liðsins. „Mér finnst við hafa nýtt tímann vel. Við byggðum upp góðan líkamlegan grunn í vor og færðum síðan áhersluna yfir á nýju leikmennina og liðsheildina í júlí og ágúst.“

Daniel vill þó lítið velta fyrir sér stöðu Þórs miðað við önnur lið deildarinnar, þegar hann er beðinn um að meta hvar hann telji Þór standa. „Það er erfitt að segja með einhverri vissu hvar við stöndum miðað við hin liðin. Þegar komið er svona nálægt fyrsta leiknum finnst manni aldrei neitt alveg öruggt. En mér finnst við líta ágætlega út og við ættum að vera tilbúnir að berjast um stig frá byrjun,“ segir Daniel.

Áfram í lykilhlutverkum: Hafþór Vignisson, Þórður Tandri Ágústsson, Brynjar Hólm Grétarsson og Oddur Gretarsson. Myndir: Ármann Hinrik

Stöðugleiki lykilatriði

Daniel er inntur eftir hvort hann og Þórsarar ætli að nálgast hlutina einhvern veginn öðruvísi í vetur, út frá reynslu síðasta vetrar. „Ég myndi ekki segja að við ætlum að gera hlutina öðruvísi. Þetta er frekar áframhaldandi ferli. Við unnum mikið og gott starf á síðasta tímabili og bættum okkur eftir því sem leið á. Við vonumst til að halda því áfram í vetur,“ svarar hann og bætir við að það skipti miklu máli að ná stöðugleika. „Ég held að lykilatriðið fyrir okkur sé stöðugleiki og hvort við náum stöðugleika yfir heilt tímabil. Það á við um hvern og einn leikmann, þjálfarana, liðið sem heild og einnig félagið,“ segir Daniel.

Markmiðið skýrt

Þór er spáð áttunda sæti deildarinnar í vetur, en liðinu var spáð 11. sæti fyrir síðasta tímabil. Daniel vill þó ekki leiða hugann mikið að spádómum. „Ég læt aðra um að spá fyrir um þetta, það er ekki mitt hlutverk. En það er eðlilegt að spáin endurspegli að við höfum styrkt hópinn og að við vorum á endanum mjög nálægt því að komast í úrslitakeppnina á síðasta tímabili. Miðað við það finnst mér spáin skiljanleg,“ svarar hann og þegar hann er spurður um markmið Þórsara í vetur þá er það á kristaltæru. „Fyrir okkur er mjög skýrt að allt annað en að komast í úrslitakeppnina í vetur yrði vonbrigði,“ segir Daniel.

Eftir langa bið eftir alvöru leikjum segir Daniel vera tilhlökkun hjá Þórsurum að komast út á völl. „Við erum bara spenntir að byrja aftur, þetta hefur verið löng bið. Við spiluðum síðast keppnisleik snemma í mars, þannig að það verður gott að komast aftur út á völlinn,“ segir Daniel Birkelund, þjálfari Þórs.

Arnór Þorri Þorsteinsson, til vinstri, og Halldór Kristinn Harðarson lögðu báðir skóna á hilluna eftir síðasta keppnistímabil. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Breytingar á leikmannahópi Þórs frá síðasta tímabili

Komnir:
Bertram Simonsen frá Lemvig (Danmörk)
Mikkel Jensen frá Skanderborg (Danmörk)
Oliver Christensen frá Skanderborg (Danmörk)
William Skovsager frá Kyndli (Færeyjum)
Jóhann Geir Sævarsson frá KA
 
Farnir:
Arnór Þorri Þorsteinsson - hættur
Arnviður Ævar Björnsson í Fjölni
Guðmundur Hlífar Jóhannesson í Fjölni
Halldór Kristinn Harðarson - hættur
Igor Chesilov
Kári Kristján Kristjánsson - hættur
Þormar Sigurðsson - hættur

Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting

Sólveig Pétursdóttir skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Hönd í hönd niður um deild?

Þorleifur Ananíasson skrifar
04. september 2026 | kl. 08:30

Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa

Björn Snæbjörnsson skrifar
02. september 2026 | kl. 15:30

Birta og Salka – fyrir okkur öll

Valdís Rut Jósavinsdóttir skrifar
31. ágúst 2026 | kl. 16:00

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 17:17

Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?

Hjörtur Hjartarson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00