Hönd í hönd niður um deild?
Það blæs ekki byrlega fyrir Úrvalsdeildarliðunum okkar í knattspyrnu. Nú þegar langt er liðið á tímabilið eru bæði Akureyrarfélögin K.A. og Þór í bullandi fallhættu.
Það er því ekki furða að stuðningsmenn félaganna klóri sér í kollinum. Svo virðist sem gríðarleg uppbygging á svæðum þeirra skili ekki neinu.
Bæði félögin hafa einnig fengið mjög góða aðsókn á leiki, en ekkert gengur. Svo virðist raunar að því fleiri gervigrasvellir og stærri og
glæsilegri stúkur, því lélegri er frammistaðan.
Nú þegar fall blasir við liðunum í hverju skrefi, gætu Akureyrarliðin tvö hæglega fallið úr deildinni. Ástæðan er ekki óheppni sem hægt er að
skýla sér á bakvið, nei arfaléleg frammistaða er ástæðan. Stressið er heldur ekki að hjálpa til. K.A. menn fóru á taugum og bættu öðrum þjálfara í hópinn ekki alls fyrir löngu. Eiður Smári með alla sína reynslu, en ekkert breyttist. Það er heldur ekki að ástæðulausu að ekki er bætt við skipstjóra þó hann hætti að afla heldur er einfaldlega skipt um mann í brúnni.
En það er ekki öll nótt úti enn þó staðan sé slæm. Þórsarar hafa heldur verið að skána, en K.A. sem hefur verið með þokkalegt forskot á Þór í
sumar hefur nú tekið við botnsætinu og kemst ekki neðar. Þegar maður skoðar stöðuna eins og hún er í dag þykir mér sjálfgefið að a.m.k. annað Akureyrarliðið falli. Ef vel gengur gæti annaðhvort liðið K.A. eða Þór bjargað sér. Það verða spennuþrungnir leikir framundan og útilokað að spá fyrir um úrslit. Það yrði sannarlega blóðugt fyrir liðið eða liðin sem nú berjast fyrir lífi sínu eftir alla þá uppbyggingu og fjárútlát félaganna ef allt fer á versta veg.
Væri það þó ekki svolítið krúttlegt að erkiféndurnir til margra ára, K.A. og Þór héldust saman hönd í hönd niður í aðra deild í haust?
Þorleifur Ananíasson er KA-maður

KA og Þór gerðu í lok júlí markalaust jafntefli í fyrsta leiknum á nýjum gervigrasvelli KA þar sem risin er glæsileg stúka. Mynd: Ármann Hinrik
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!
Óskhyggjan og veruleikinn