Fjögurra mark tap KA/Þórs í Eyjum
KA/Þór tapaði fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum í dag þegar keppni hófst í Olís deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. Lokatölur urðu 32:28 og munurinn var sá sami í hálfleik, 19:15.
Eyjastúlkum var spáð Íslandsmeistaratitlinum á dögunum, í árlegum samkvæmisleik fyrirliða og þjálfara, en KA/Þór því sjötta. Stelpurnar okkar réðust því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í upphafsleiknum og leikmenn ÍBV virtust vilja sýna það strax frá byrjun að spáin væri raunhæf; meistaraefnin hófu leik af fítonskrafti og voru komin sex mörkum yfir, 10:4, eftir aðeins 10 mínútur. KA/Þór náði að laga stöðuna hægt og bítandi, fjórum mörkum munaði í hálfleik sem fyrr segir en gestirnir náðu aldrei að komast nær. Munurinn var fjögur til sex mörk í seinni hálfleiknum og sigur ÍBV öruggur og sanngjarn.
Hornamaðurinn Joan Rúnadóttir Johannesen, sem kom frá Kyndli í Færeyjum í sumar, gerði átta mörk í þessm fyrsta deildarleik sínum með KA/Þór en Lydía Gunnþórsdóttir lék best í liði KA/Þórs. Hún gerði 4 mörk, öll af vítalínunni, og skapaði alls 15 færi fyrir samherjana. Átta þeirra nýttust að skv. tölfræðinni átti hún átta stoðsendingar.
Mörk KA/Þórs: Joan Rúnadóttir Johannesen 8 (1 víti), Lydía Gunnþórsdóttir 4 (4 víti), Agatha Kjærbæk Djurhuus 4, Lenka Ratvajská 4, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 3, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 2, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 2, Herdís Eiríksdóttir 1.
Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 6 (24%), Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 5 (28%).
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 8 (4 víti), Alexandra Ósk Viktorsdóttir 7, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Amelía Dís Einarsdóttir 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 4, Andrea Jacobsen 2, Klara Káradóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 1.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 8 (23%), Tara Sól Úranusdóttir 0.
KA/Þór leikur á heimavelli í 2. umferð mótsins. Lið Hauka kemur í KA-heimilið um næstu helgi, laugardaginn 12. september.
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!