Fara í efni
Umræðan

Þórsarar og KA-menn sigri hrósandi í dag

Þorri Ingólfsson með boltann í leiknum gegn FH í dag. Þessi ungi lánsmaður frá Víkingi gerði sigurmarkið; fyrsta mark hans fyrir Þór kom í mikilvægum leik; á hárréttum tíma má segja. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sigri var fagnað bæði í Þorpinu og á Brekkunni í dag, þegar Þór og KA unnu mikilvæga sigra í 22. og síðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu fyrir skiptingu hennar í tvennt. Þór vann FH 1:0 og KA lagði Breiðablik 2:1 Ánægjulegur akureyrskur dagur og sex gríðarlega dýrmæt stig náðust í hús.

  • Þorri Ingólfsson, lánsmaðurinn ungi frá Víkingi, gerði sigurmark Þórs gegn FH þegar 15 mín. voru liðnar af seinni hálfleik. Fyrsta mark hans fyrir félagið og það kom sannarlega á hárréttum tíma!
  • Hans Viktor Guðmundsson og Mikael Breki Þórðarson skoruðu fyrir KA. Hans Viktor strax á 10. mín., Blikar jöfnuðu aðeins rúmri mínútu síðar en Mikael Breki gerði sigurmarkið þegar tæpur hálftími var eftir.

Með sigrinum fór KA upp úr botnsæti deildarinnar og ÍBV, sem gerði jafntefli við Stjörnuna, er nú neðst. Þór jafnaði FH að stigum og ljóst er að hörð fallbarátta er framundan því staða fjögurra neðstu liða er ótrúlega jöfn þegar fimm leikja „framlenging“ stendur fyrir dyrum. 

Staða sex neðstu liðanna er þessi. Leikin verður einföld umferð, 15 stig eru því í pottinum og tvö neðstu falla að lokum úr deildinni.

  • Stjarnan - 28 stig
  • Valur - 27 stig
  • FH - 21 stig
  • Þór - 21 stig
  • KA - 20 stig
  • ÍBV - 18 stig

Meira seinna í dag

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15