Fara í efni
Umræðan

Fótbolti og íshokkí heima – handbolti syðra

Fótbolti, handbolti og íshokkí á dagskránni í dag. Nú dregur til tíðinda í 5. deild karla í fótboltanum, seinni undanúrslitaviðureignirnar og þar eru Hamrarnir í góðri stöðu, eiga heimaleik eftir jafntefli á útivelli í fyrri viðureigninni. Þórsarar hefja leik í Olísdeild karla í handbolta og SA konur spila sinn fyrsta leik í Toppdeildinni í íshokkí síðdegis.


UPPFÆRT Í HÁDEGI Á LAUGARDEGI: Fyrsti leikur KA/Þórs í Olísdeild kvenna í handbolta, sem var upphaflega á dagskrá á mánudag, var færður yfir á daginn í dag og hefst kl. 13. Óhætt er að segja að um bratta byrjun á mótinu sé að ræða hjá Akureyrarliðinu því það mætir ÍBV í Eyjum, en Eyjakonur fóru alla leið í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val í vor, en lutu í lægra haldi.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 1. umferð
    Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja kl. 13
    ÍBV - KA/Þór

Íþróttadeild akureyri.net hefur ekki fjallað sérstaklega um keppni í 5. deild karla í knattspyrnu, en þar eiga Akureyringar reyndar fulltrúa engu að síður. Lið Hamranna er þar á góðri leið með að vinna sig upp um deild. Liðunum í 5. deild var skipt í tvo riðla og tvö efstu lið hvors riðils komast áfram í undanúrslit. Hamrarnir unnu sinn riðil og mættu Smára, sem endaði í 2. sæti hins riðilsins, í fyrri undanúrslitaviðureign um liðna helgi í Kópavogi. Niðurstaðan varð jafntefli, 2-2. Seinni leikur liðanna fer fram á Akureyri í dag. Sigurliðið úr þessum tveimur viðureignum mætir annaðhvort Skallagrími eða Stokkseyri í úrslitaleik um deildarmeistaratitil 5. deildar, en bæði lið úrslitaleiksins fara upp í 4. deild.

  • Fótbolti
    5. deild karla, undanúrslit, seinni leikur
    Greifavöllurinn á Akureyri (KA-völlur) kl. 15
    Hamrarnir - Smári

Handboltinn er kominn í gang, fyrstu leikir Olísdeildarinnar hafa nú þegar farið fram og í dag hefur lið Þórs leik með heimsókn í Úlfarsárdalinn. Veturinn fram undan, breytingar hjá Akureyrarliðunum og spár um niðurstöður voru til umfjöllunar á akureyri.net fyrr í vikunni, og í dag verður einnig fjallað ítarlegar um Þórsliðið og breytingar í herbúðum þeirra.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 1. umferð
    Lambhagahöllin í Úlfarsárdal kl. 16
    Fram - Þór

Íshokkífólk er komið af stað og stutt í að keppni á Íslansdmótunum í meistaraflokkunum, Toppdeildunum, hefjist. Konurnar byrja í Skautahöllinni á Akureyri í dag og mætast þá liðin sem börðust um Íslandsmeistaratitilinn í vor, SA og SR. Nánar er fjallað um upphaf íshokkítímabilsins hjá kvennaliði SA í sér grein hér á akureyri.net.

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15