Fara í efni
Umræðan

Birta og Salka – fyrir okkur öll

„Hvað er Birta og Salka?“ Þessa spurningu fékk ég fyrir stuttu og miðað við það fjölbreytta og öfluga starf sem þar fer fram finnst mér að sem flest á Akureyri og í nágrenni ættu að vita svarið.

Ég kynntist sjálf félagsmiðstöðvunum fyrir rétt tæpum tveimur árum þegar ég tók við sem umsjónarmaður Birtu og Sölku. Fram að því hélt ég að þetta væru einfaldlega staðir fyrir fólk 67 ára og eldra til að koma saman, sinna handverki, prjóna, smíða og mála – og jú, kannski borða saman. Ég vissi sem sagt álíka mikið og sá sem spurði mig þessarar spurningar um daginn.

Það fyrsta sem kom mér á óvart var að Birta og Salka eru fyrir öll 18 ára og eldri. Öll eru velkomin.

Birta og Salka eru nefnilega fyrst og fremst samfélagshús þar sem lögð er áhersla á að skapa lifandi og hlýlegt samfélag. Þar á að vera gott að koma og öll eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fjölbreytnin kom mér líka á óvart. Fjöldi námskeiða er hreint út sagt ótrúlegur og ekki hafði ég hugmynd um að hægt væri að sækja allt þetta hér á Akureyri. Opnar vinnustofur og smiðjur eru meðal annars í leir, myndlist, handavinnu, postulíni, keramiki og smíðum. Þar má koma og vinna að sínu – og ef maður lendir í brasi finnst yfirleitt lausn, hvort sem hjálpin kemur frá starfsfólkinu eða einfaldlega manneskjunni í næsta stól.

Svo eru það viðburðirnir, fræðslan, hreyfingin, spilin og allt hitt sem fyllir húsin af lífi. Hvern hefði órað fyrir því að það mætti einfaldlega mæta, taka þátt, vera með og tilheyra? Allavega ekki mig.

Það má koma í morgunbollann, fletta blöðunum og ræða málefni líðandi stundar. Setjast niður með öðrum yfir hádegismat, rifja upp gamla tíma eða spjalla yfir kökusneið seinnipartinn.

En það sem skiptir kannski mestu máli er að í Birtu og Sölku má líka bara koma og vera.

Ég má sitja hljóð og hlusta – og tilheyra.
Ég má tala meira og hlæja hátt – og tilheyra líka.

Þarna er samfélag þar sem fólk skiptir máli. Ég skipti máli – og þú skiptir máli.

Í dag er mikið rætt um félagslega einangrun og einmanaleika. Það getur verið erfitt að koma sér af stað, sérstaklega þegar maður þekkir engan eða veit ekki alveg hvað bíður manns. Stundum er stærsta skrefið einfaldlega skrefið yfir þröskuldinn.

Samfélaginu í Birtu og Sölku er gott að tilheyra. Ég tilheyri því – og nú þegar vetrarstarfið okkar er að fara af stað langar mig að bjóða þér að kynna þér það, koma við og sjá hvað við erum að gera.

Miðvikudaginn 2. september verður vetrarstarf Birtu og Sölku kynnt:

  • Birta, Bugðusíðu – kl. 10:30–11:30
  • Salka, Víðilundi 22 – kl. 13:30–14:30


Starfsfólkið tekur á móti gestum, kynnir starfsemina og segir frá því sem verður í boði í vetur. Að kynningu lokinni verða kaffi og kleinur í boði hússins.

Kynningardagurinn er kjörið tækifæri til að koma, skoða aðstöðuna og kynnast starfinu. Það þarf ekki að þekkja neinn, vera skráð á námskeið eða vita fyrirfram hvað maður vill gera.

Stundum byrjar þátttakan einfaldlega á því að ganga inn um dyrnar.

Fylgist einnig með lífinu og fjörinu í Birtu og Sölku á Facebook undir Birta og Salka – félagsmiðstöðvar fólksins og á Instagram undir birtaogsalka.

Í Birtu og Sölku er samfélag – og þar er pláss fyrir þig.

Valdís Rut Jósavinsdóttir er umsjónarmaður Birtu og Sölku

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 17:17

Óskhyggjan og veruleikinn

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00

Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?

Hjörtur Hjartarson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00

NEI

Jón Hjaltason skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 10:30

Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land

Logi Einarsson skrifar
26. ágúst 2026 | kl. 15:30

Gamli sáttmálinn og sá nýi

Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar
26. ágúst 2026 | kl. 15:15