Fara í efni
Umræðan

„Stelpurnar okkar“ í átta liða úrslit bikarsins?

Susanne Denise Pettersen og samherjar í KA/Þór fá Selfyssinga í heimsókn í dag. Sú danska átti stórleik í síðasta deildarleik þegar KA/Þór vann Fram á útivelli og var leikmaður 6. umferðar Olísdeildarinnar að mati Handboltahallarinnar, vikulegs þáttar um handbolta í Sjónvarpi Símans. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA/Þór tekur á móti liði Selfoss í dag í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta, Powerade-bikarnum, eins og keppnin kallast. Leikurinn hefst kl. 18:30 í KA-heimilinu.

Með sigri komast „Stelpurnar okkar“ í átta liða úrslit. Einungis 12 lið taka þátt í 16 liða úrslitunum því Íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar Hauka sitja hjá og koma inn í átta liða úrslitin.

  • Powerade-bikarinn í handknattleik kvenna
    KA-heimilið kl. 18:30
    KA/Þór - Selfoss

Nýliðar KA/Þórs eru í 2. sæti Olís deildarinnar, efstu deildar íslandsmótsins, með átta stig að loknum sex leikjum, en Selfyssingar eru í sjöunda og næst neðsta sæti með tvö stig, einnig eftir sex leiki.

Verði allt með felldu ætti KA/Þór að leggja andstæðing dagsins, miðað við stöðuna í deildinni en ekkert er sjálfgefið í íþróttum og vert að nefna að liðin hafa mæst einu sinni í vetur og sú viðureign var mjög jöfn, en reyndar ótrúlega sveiflukennd.

Það var í þriðju umferð Olísdeildarinnar og „Stelpurnar okkar“ fögnuðu sigri, 27:25, á Selfossi, 24. september. KA/Þór hafði eins marks forystu í hálfleik og jók muninn í fimm mörk snemma í seinni hálfleik en þá fóru heimamenn í gang, gerðu níu mörk gegn einu á 15 mínútum og þegar 10 mínútur voru eftir var staðan 25:22 fyrir Selfyssinga. Þá skipuðust veður skjótt  í lofti á ný og KA/Þór gerði fimm síðustu mörkin.

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20