Fara í efni
Umræðan

Hús BSO fæst gefins, rifið ef enginn þiggur

Mynd: Þorgeir Baldursson

Viltu eignast húsið margumtala þar sem Bifreiðastöð Oddeyrar – leigubílastöðin BSO – hafði aðsetur í um 70 ár, þar til í síðustu viku? Akureyrarbær auglýsir í dag að húsið fáist gefins en flutningur þess af lóðinni við Strandgötu verður á ábyrgð og kostnað þess sem eignast húsið. Þigg enginn húsið að gjöf verður það rifið.

Svohljóðandi tilkynning birtst á vef Akureyrarbæjar í dag:

Akureyrarbær auglýsir húsnæði til flutnings

Um er að ræða húsnæði sem hefur hýst rekstur Bifreiðastöðvar Oddeyrar í um 70 ár, stærð húsnæðis er 70 m² og var byggt árið 1956 ásamt viðbyggingum.

  • Húsnæðið er afhent án endurgjalds en flutningur hússins er á ábyrgð og kostnað þess sem valin er.
  • Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.
  • Bjóðandi skal skila inn upplýsingum rafrænt á sama netfang eigi síðar en kl. 11:00 fimmtudaginn 21. maí 2026. Fram þarf að koma hvað húsnæðið yrði notað fyrir, hvort húsnæðið yrði nýtt til almenningsnota og hvar húsnæðið yrði staðsett.
  • Bjóðendum verðu kynnt niðurstaðan eftir að mat tilboða liggur fyrir.
  • Húsnæðið verður afhent í því ástandi sem það er í og er það á ábyrgð bjóðanda að kynna sér aðstæður húsnæðis áður en tilboð er gert.
  • Húsnæðið þarf að vera farið úr Strandgötu eigi síðar en 15. júní 2026 að öðrum kosti verður húsnæðið rifið og því fargað.
  • Við mat á tilboðum er horft til þess hvort húsnæðið verði nýtt til almenningsnota (80%) og fyrirhugaðrar staðsetningar (lóðar) (20%).

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15