„Oddsskarð“ hið nýja opnað tímabundið
Þessa dagana geta íbúar í Dvergaholti, og aðrir akandi vegfarendur, ekið til og frá götunni gegnum Óseyri. Samkvæmt deiliskipulagi er Dvergaholt botnlangagata og einu gatnamót götunnar eru við Krossanesbraut. Vegna framkvæmda Akureyrarbæjar og Norðurorku við Krossanesbraut eru þau gatnamót lokuð tímabundið en í staðinn var opnað fyrir umferð um hinn enda götunnar, við Óseyri.
Eins og kom fram í fréttum á akureyri.net nýverið hafnaði skipulagsráð Akureyrarbæjar tillögu að deiliskipulagsbreytingu þess efnis að Dvergaholt yrði opið fyrir umferð í báðar áttir. Oddur Helgi Halldórsson, íbúi við Dvergaholt og fyrrverandi bæjarfulltrúi til langs tíma, lagði tillöguna fram en skipulagsráð hafnaði henni með vísan til athugasemda sem bárust við tillöguna. Oddur Helgi sendi þá inn beiðni um endurupptöku málsins því hann taldi að ákvörðun ráðsins hefði að hluta byggst á röngum upplýsingum. Bæjarráð Akureyrar féllst ekki á það og hafnaði beiðninni um endurupptöku.
Einhverjir gárungar hafa talað um götustubbinn úr Dvergaholti niður að Óseyri – sem er þá stígur en ekki gata skv. skipulagi – sem Oddsskarð og vísa þá til baráttu Odds Helga fyrir að opna götuna alla leið niður. Að sögn langminnugra var þetta „örnefni“ einnig viðhaft um Dalsbraut, sem loks var lögð í Lundahverfi á sínum tíma eftir að hafa verið á skipulagi áratugum saman. Þá var Oddur Helgi í bæjarstjórn og beitti sér fyrir því að gatan yrði kláruð.
Oddur Helgi sendir bæjaryfirvöldum pillu
Oddur Helgi sendir Akureyrarbæ tóninn í færslu á Facebook-síðu sinni eftir að Dvergaholt var tímabundið opnað vegna framkvæmdanna við Krossanesbraut og birtir mynd: „Svona fer bærinn með okkur íbúa Dvergaholts. Lokar aðkomu að húsinu okkar og sendir okkur hjáleið um stubbinn niður í Óseyri, sem þeir vildu ekki hafa opinn. Hafa ekki manndóm í sér að laga veginn, sem er nánast ókeyrandi ut af holum,“ segir Oddur Helgi og merkir oddvita meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar í færslunni, sem hafa þó ekki tekið þátt í umræðum við innlegg Odds.

Myndin sem Oddur Helgi birti á Facebook. Samkvæmt deiliskipulagi nær gatan bara að malbiksendanum og ekki hægt að aka lengra niður. En vegna framkvæmda við Krossanesbraut er nú tímabundið mögulegt að keyra alla leið.
Í frétt Norðurorku um framkvæmdirnar við gatnamót Krossanesbrautar og Undirhlíðar kemur ekki fram hversu lengi gatnamót Dvergaholts og Krossanesbrautar verða lokuð. Í fréttinni segir: „Í fyrsta áfanga verður Krossanesbraut lokað í báðar áttir, til norðurs frá gatnamótunum og til suðurs rétt sunnan við gatnamótin við Þverholt. Hjáleið er um Hörgárbraut. Þessi lokun hefst mánudaginn 21. september. Í seinni áföngum verða gatnamótin ýmist alveg lokuð eða opin að hluta, en það fer eftir framvindu framkvæmda við bæði gatnamótin og regnvatslögnina. Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær seinni áfangar hefjast.“
Það er því óljóst eins og sakir standa hversu lengi „Oddsskarð“ verður opið fyrir akandi umferð en miðað við gildandi deiliskipulag verður væntanlega skellt í lás þegar umferð um götuna til og frá Krossanesbraut kemst í eðlilegt horf.
Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum
Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?
Ónýtt drasl-fólkið
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls