Fara í efni
Umræðan

Leita að leigjendum eða kaupendum

Myndirnar með fréttinni eru úr auglýsingum N13 fasteignaþróunar ehf. á Facebook.

N13 fasteignaþróun ehf. hefur undanfarna daga auglýst eftir áhugasömum leigutökum eða kaupendum að húsi á lóðinni Naustagötu 13 sem er í undirbúningsferli.

Akureyri.net fjallaði í september um stöðu mála þegar N13 sótti um aukinn framkvæmdafrest til skipulagsráðs, en í greinargerð með umsókninni kom meðal annars fram að ýmislegt kæmi til greina varðandi mögulega starfsemi í húsnæðinu. Þar gætu komið inn ríkisstofnanir, fyrirtæki í almannaþjónustu, matvörukeðja og einkaaðilar og hafði fyrirtækið meðal annars komið metnaðarfullum hugmyndum á framfæri við Framkvæmdasýslu ríkisins. 

Í auglýsingu N13 fasteignaþróunar ehf. kemur fram að húsið muni henta mjög vel fyrir margs konar starfsemi, sérstaklega þá sem gott er að hafa í göngufæri í grónu hverfi, eins og það er orðað í auglýsingunni. Þar eru nefnd sem dæmi höfuðstöðvar eða útibú fyrirtækja eða stofnana, matvöru- eða dagvöruverslun, sérvöruverslun á borð við apótek, blómaverslun eða bakarí, sjúkraþjálfara, tannlækna eða aðra heilbrigðisþjónustu, hárgreiðslu-, rakara- eða snyrtistofu eða skyndibitastað. 

Í annarri auglýsingu er mögulegra leigutaka eða kaupenda freistað með því að benda á að vel hafi verið hugsað fyrir bílastæðum, sem ekki sé alltaf raunin við skrifstofuhúsnæði. Fjöldi stæða færi síðan eftir því hvort allt húsnæðið yrði notað undir skrifstofur eða verslunarrými á jarðhæð, eða frá 106 upp í 142 stæði, með eða án bílastæðahæða eða bílakjallara. 

„Í öllum tilfellum er gert ráð fyrir hleðslustæðum bæði fyrir rafmagnsbíla og rafmagnshjól. Samgöngutengingar við lóðina eru einstaklega góðar, hvort sem er akandi, hjólandi, frían strætó eða gangandi milli hverfa. Útkeyrslan fer beint inn í hringtorgið sem fyrir er og má nefna að það tekur innan við 10 mínútur að aka á Akureyrarflugvöll og í miðbæ Akureyrar,“ segir meðal annars í einni auglýsingunni.

Fyrirtækið hefur einnig auglýst „ný viðmið í gæðum“ þar sem tekið er fram að áhersla verði á vandaða hljóðvist og góða lofthæð milli allra hæða, í húsinu verði stórir gluggar á öllum hliðum með útsýni til fjalla og veiti jafnframt góð birtuskilyrði. Hugmyndir að skipulagi innanhúss eru í mótun og verða útfærð eftir óskum og þörfum þeirrar starfsemi sem kemur til með að nýta húsið.

Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir

Páll Kristjánsson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
23. nóvember 2026 | kl. 14:15

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45