Langþráður sigur og KA datt í lukkupottinn
Loksins! Eftir sjö leikja þrautagöngu frá sigrinum gegn Skagamönnum 12. júlí gátu KA-menn loks fagnað innilega í leikslok í Bestu deild karla í fótbolta. Þeim tókst að leggja Breiðablik að velli, 2-1, á KA-vellinum í dag og spyrna sér með því af botni deildarinnar í 22. og síðustu umferðinni í hefðbundnu deildarkeppninni.
Hans Viktor Guðmundsson kom KA yfir á 10 mínútu, Ásgeir Helgi Orrason jafnaði fyrir Blika tveimur mínútum síðar en sigurmarkið mikilvæga skoraði Mikael Breki Þórðarson, miðjumaðurinn ungi, á 64. mínútu. Danijel Dejan Djuric, sem var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn í sex leikjum, lagði upp fyrra markið og átti stóran þátt í því seinna.
Þar með endar KA í 11. sætinu með 20 stig. Fyrir ofan eru FH og Þór með 21 stig en ÍBV situr á botninum með 18 stig. Stjarnan (28) og Valur (27) eru hin tvö liðin í neðri hluta deildarinnar í fimm síðustu umferðunum og segja má að KA hafi dottið í lukkupottinn hvað heimaleikina varðar því ellefta sætið gefur liðinu heimaleiki gegn bæði Þór og ÍBV.


Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði KA kemur liðinu yfir með skalla eftir hornspyrnu á 10. mínútu og því var vitaskuld vel fagnað. Hans Viktor var að öðrum ólöstuðum í algjöru lykilhlutverki, bæði í vörn og sókn. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Akureyrarslagurinn 20. september
KA sækir FH heim 13. september, fær heimaleik gegn Þór 20. september, útileik gegn Stjörnunni 11. október, útileik gegn Val 18. október og endar svo á heimaleik gegn ÍBV 24. október.
Framundan er gríðarlega spennandi barátta fjögurra liða fyrir lífi sínu í deildinni og ljóst er að Akureyrarslagurinn gegn Þór sunnudaginn 20. september, með fyrirvara um breytingar, verður einn af úrslitaleikjum haustsins. Spurning hvort KA-menn nái að spila hann á nýja vellinum, eins og þegar liðin mættust þar í heimaleik KA fyrr í sumar og tvö þúsund áhorfendur komu á völlinn.
KA-menn börðust fyrir þessum sigri frá fyrstu til síðustu mínútu og stóðust áhlaup Blikanna eftir að hafa komist yfir í leiknum þó litlu hafi munað í nokkur skipti. KA-menn voru hins vegar óheppnir að skora ekki þriðja markið eftir góð færi með stuttu millibili undir lokin. Fyrirliðinn Hans Viktor Guðmundsson var að öðrum ólöstuðum í algjöru lykilhlutverki í dag, bæði í vörn og sókn því hann skoraði fyrra markið og var hættulegur í öllum föstum leikatriðum heimamanna.
Reynsla André Römers var KA-liðinu líka mikilvæg en hann lék af mikilli skynsemi og yfirvegun við hlið Hans í vörninni. Danijel Dejan hefur sætt gagnrýni á Akureyri fyrir sína frammistöðu í búningi KA en þáttur hans í mörkum liðsins var að sjálfsögðu ómetanlegur og KA þarf á því að halda að hann verði í sínu besta standi í síðustu fimm umferðunum.

Danijel Dejan Djuric, til vinstri, var í byrjunarliði KA á nýjan leik í dag og átti þátt í báðum mörkum liðsins. Daninn André Römer, til hægri, hefur reynst KA-liðinu mikill styrkur. Hann lék af mikilli skynsemi og yfirvegun. Myndir: Sævar Geir Sigurjónsson
Fjórar breytingar vegna meiðsla
Hallgrímur Jónasson og Eiður Smári Guðjohnsen gerðu fjórar breytingar á byrjunarliði KA frá jafnteflisleiknum gegn Fram. Birgir Baldvinsson, Jeppe Pedersen, Danijel Dejan Djuric og Snorri Kristinsson komu inn í liðið en þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson, Kári Gautason, Valdimar Logi Sævarsson og Jakob Snær Árnason voru ekki í hópnum vegna meiðsla. Umtalsverðar breytingar sem var örugglega ekki það sem þeir Hallgrímur og Eiður ætluðu sér og það var að sjálfsögðu áhyggjuefni fyrir þá og stuðningsmenn KA að vera án Hallgríms Mars í þessum þýðingarmikla leik.
Snorri var í byrjunarliði KA í fyrsta skipti í efstu deild, eftir að hafa komið tíu sinnum við sögu sem varamaður frá árinu 2024.
Steinþór snýr aftur
Ásgeir Sigurgeirsson og Hrannar Björn Steingrímsson voru í hópnum eins og síðast en þeir misstu sem kunnugt er alveg af fyrstu 20 umferðum tímabilsins vegna langvarandi meiðsla. Þá kom Steinþór Már Auðunsson markvörður aftur inn í hópinn eftir sjö leikja fjarveru vegna handarbrots.
Hjá Blikum kom mest á óvart að Ívar Örn Árnason, fyrrverandi fyrirliði KA, var á varamannabekknum í fyrsta skipti eftir að hafa spilað 19 af 21 leik liðsins á tímabilinu, alla í byrjunarliðinu, og þar sátu einnig fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson og varafyrirliðinn Viktor Karl Einarsson, en tveimur þeim síðarnefndu var teflt fram síðasta fjórðung leiksins.

Mikael Breki Þórðarson, dökkhærður fyrir miðri mynd, sendir boltann í mark Breiðabliks eftir rúmlega klukkutíma leik og tryggir KA-mönnum afar dýrmæt þrjú stig. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Góð byrjun KA
KA byrjaði leikinn mun betur og strax á 3. mínútu átti Hans Viktor skot í þverslána og yfir eftir fyrirgjöf Adams Ægis Pálssonar.
Danijel Dejan var svo ágengur á 9. mínútu og átti skot í varnarmann og þaðan í stöngina utanverða. Danijel fór beint á hornfánann og tók hornspyrnuna - sendi rakleiðis á kollinn á Hans Viktori sem skallaði boltann óverjandi í Blikamarkið, 1-0 fyrir KA. Fyrsta mark fyrirliðans á tímabilinu.
En gleðin var skammvinn því strax á 12. mínútu jafnaði Ásgeir Helgi Orrason eftir hornspyrnu og slysalegan varnarleik heimamanna og staðan orðin 1-1. Tvö miðvarðamörk á fyrstu tólf mínútum leiksins.
Ásgeir Helgi fékk síðan gula spjaldið á 21. mínútu fyrir að stöðva Adam Ægi í efnilegri sókn KA-manna.
KA slapp með skrekkinn á 24. mínútu þegar Kristófer Ingi Kristinsson skallaði í þverslá eftir hornspyrnu. Annars gerðist fátt meira í tiltölulega jöfnum fyrri hálfleik og staðan að honum loknum var 1-1.
Fyrsta markið á árinu gulls ígildi
Jeppe Pedersen fékk gula spjaldið á 55. mínútu fyrir að stöðva Jónatan Guðna Arnarsson í vænlegri stöðu skammt utan vítateigs. Blikar fengu aukaspyrnu á fínum stað en Þorleifur Úlfarsson skaut yfir KA-markið.
En það var KA sem komst yfir á 64. mínútu. Danijel hirti boltann af leikmanni Breiðabliks skammt utan vítateigs og náði að pota honum á Birgi Baldvinsson á vítateigslínunni, Birgir gaf inn í teiginn á Mikael Breka Þórðarson sem sneri sér með boltann og skaut í hægra hornið, 2-1. Fyrsta mark Mikaels á tímabilinu og hans þriðja fyrir félagið í efstu deild.
Markvörðurinn Ívar Arnbro Þórhallsson hafði nóg að gera í kjölfarið, varði fyrst vel hörkuskot frá Þorleifi og síðan frá Ásgeiri Helga sem var í góðu færi en skaut beint á hann. Rétt á eftir bjargaði Markús Máni Pétursson á marklínu KA-manna sem voru manni færri eftir klúður við innáskiptingu. Danijel Dejan fékk þá heldur betur fyrirlestur frá þjálfurunum fyrir að vera of lengi að koma sér af velli, sem þýddi að Blikar sóttu stíft í tvær mínútur, manni fleiri.

Anton Ari markvörður Breiðabliks ver glæsilega frá Húsvíkingnum unga, Jakob Héðni Róbertssyni, sem komst í ákjósanlegt færi undir lokin eftir frábæra sendingu Jeppe Pedersen. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Ásgeir kominn í slaginn
Ásgeir Sigurgeirsson mætti til leiks í fyrsta skipti á þessu ári á 78. mínútu en hann hefur verið frá keppni frá síðasta hausti. Mikill styrkur fyrir KA að endurheimta hann fyrir baráttuna sem framundan er.
Birgir var hársbreidd frá því að koma KA í 3-1 á 85. mínútu þegar hann átti hörkuskot í þverslá Blikamarksins. Eftir tvær hornspyrnur í kjölfarið komst Hans Viktor í mjög gott færi en hitti boltann illa og Anton Ari í Blikamarkinu varði auðveldlega. Jakob Héðinn Róbertsson slapp síðan einn gegn Antoni Ara eftir frábæra sendingu Jeppe Pedersen en Anton kom út á móti og varði glæsilega frá Húsvíkingnum unga. Þarna voru KA-menn ítrekað alveg við það að gera út um leikinn.
Oft fá menn slíkt í bakið en ekki í þetta skipti. Arnar Bjarki Gunnleifsson skallaði yfir mark KA úr ágætu færi á 90. mínútu en annars sköpuðu Kópavogsbúar sér ekki teljandi marktækifæri. KA-menn vörðust með kjafti og klóm og gátu fagnað innilega í leikslok sínum fyrsta sigri í tæpa tvo mánuði.
Lið KA: Ívar Arnbro Þórhallsson - Hans Viktor Guðmundsson, André Römer, Markús Máni Pétursson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Snorri Kristinsson (Ásgeir Sigurgeirsson 78.), Jeppe Pedersen (Bjarki Fannar Helgason 90+1.), Mikael Breki Þórðarson, Birgir Baldvinsson - Adam Ægir Pálsson (Diego Montiel 69.), Danijel Dejan Djuric (Jakob Héðinn Róbertsson 71.)
Áhorfendur voru 625.
Nú er hefðbundinni 22 leikja deildarkeppni lokið. Sex efstu liðin halda áfram baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og mætast innbyrðis í einfaldri umferð, rétt eins og sex neðstu liðin gera. Tvö neðstu liðin að þeirri viðbót lokinni falla úr deildinni.
Leikir KA í neðri hlutanum eru sem hér segir, með fyrirvara um breytingar:
- Sunnudag 13. september
FH - KA - Sunnudag 20. september
KA - Þór - Sunnudag 11. október
Stjarnan - KA - Sunnudag 18. október
Valur - KA - Laugardag 24. október
KA - ÍBV
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa
Birta og Salka – fyrir okkur öll
Fögnum saman á Akureyrarvöku!