Fara í efni
Umræðan

Jákvætt tekið í ósk um fljótandi sánu

Skipulagsráð Akureyrarbæjar tekur jákvætt í hugmyndir um fljótandi sánuklefa.

Skipulagsráð Akureyrar tekur jákvætt í ósk frá MeiSauna ApS, þar sem óskað var eftir að fá úthlutað plássi við bryggju á Akureyri fyrir fljótandi sánu. Skipulagsfulltrúa var falið á fundi ráðsins að kanna mögulegar staðsetningar, í samráði við Hafnasamlag Norðurlands og umhverfis- og mannvirkjasvið.

Það var Meinhard Egilsson Olsen sem sendi inn erindið en hann er einn þriggja ungra frumkvöðla frá Færeyjum sem komu á fót fyrstu fljótandi sánunni þar í landi árið 2024. Hugmyndir þeirra ganga út á að koma fyrir 1-2 fljótandi sánuklefum við bryggju á Akureyri og gera langtímasamning við bæjarfélagið. Fyrsti kostur þeirra er að sánan verði staðsett við Hof en smábátahöfnin í Sandgerðisbót er nefnd til vara.

Sjór og sána til skiptis er sagt allra meina bót. Myndir: saunadypp.fo.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að bóka tíma í klefana frá 6 að morgni fram á kvöld og að bókunarferlið verði sjálfvirkt. Viðskiptavinir fá sendan talnakóða til að komast inn í klefana og geti nýtt aðstöðuna í 90 mínútur. Í umsókninni er bent á að starfsemin hafi engin varanleg áhrif á umhverfi sitt. Klefarnir eru fljótandi, þannig að ekki þurfi að byggja nein mannvirki. Hvor klefi rúmar 10 manns.

Í gögnum þeirra kemur fram að gestir Saunadypp, eins og þeir kalla starfsemina, hafi verið yfir 8.000 talsins í færeyska bænum Runavik á árinu 2025 og nýtingin hafi verið 85% yfir sumarmánuðina. Runavik er 4.000 manna bæjarfélag og áætlanir þeirra gera ráð fyrir að gestafjöldinn í fljótandi sánuklefana á Akureyri verði yfir 20.000. Auk þess að kaupa aðgang í stakt skipti verði einnig boðið upp á áskriftarkort til lengri tíma.

Mannhvelið: þar sem drengir verða karlmenn

Skúli Bragi Geirdal skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands?

Erna Bjarnadóttir skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:30

Vantar ríki sem geta borgað

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
19. mars 2026 | kl. 13:00

Fyrir hvað á Akureyri að standa?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
14. mars 2026 | kl. 18:00

Gamla, góða Akureyri

Þorleifur Ananíasson skrifar
13. mars 2026 | kl. 10:00

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30