Fara í efni
Umræðan

Íslandsmót golfklúbba hefst í dag

Akureyrarmeistarar í golfi 2026, Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Tumi Hrafn Kúld, verða í eldlínunni með GA á Íslandsmóti klúbbanna. Myndir: Ármann Hinrik.

Íslandsmót golfklúbba í 1. deild hefst í dag og stendur fram á laugardag. Lið frá Golfklúbbi Akureyrar eru meðal sveita sem etja kappi um Íslandsmeistaratitilinn, bæði í kvenna- og karlaflokki. Karlasveitirnar leika á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu en kvennasveitirnar spila á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar. 

Átta lið keppa í hvorri deild og er þeim skipt í 2 fjögurra liða riðla þar sem allir leika við alla. Tvö efstu liðin í hvorum riðli komast í undanúrslit og leika um sæti 1.-4. en tvö neðstu liðin leika um sæti 5.-8. Liðin sem hafna í sætum 7 og 8 falla síðan í 2. deild.

Í hverri viðureign í karlaflokki leika 7 keppendur hvers liðs hverju sinni en 6 keppendur hjá konunum. Keppt er í holukeppni, bæði í fjórmenningi (tveir spila saman gegn tveimur) og tvímenningi (einn spilar gegn einum). 

Lið GA eru þannig skipuð að í kvennasveitinni eru þær Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Arna Rún Oddsdóttir, Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Kara Líf Antonsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir. Karlasveitina skipa síðan Mikael Máni Sigurðsson, Óskar Páll Valsson, Patrik Róbertsson, Ragnar Orri Jónsson, Tumi Hrafn Kúld, Valur Snær Guðmundsson, Veigar Heiðarsson, Víðir Steinar Tómasson og Örvar Samúelsson.

Sveitir GA náðum mjög góðum árangri á Íslandsmótinu í fyrra, komust báðar í undanúrslit en urðu að sætta sig við 4. sætið að lokum.

Keppni hefst í bítið og leikar verða tvær umferðir í dag. Kvennasveitin mætir sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í 1. umferð (fylgjast með stöðunni beint hér) og karlarnir leika gegn Golfklúbbi Mosfellsbæjar (fylgjast með stöðunni beint hér).

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00