Fara í efni
Umræðan

Golf: Lilja Maren Íslandsmeistari unglinga

Lilja Maren Jónsdóttir átti frábæra spretti á nýliðnu Íslandsmóti í höggleik og um helgina tryggði hún sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik 17-18 ára. Mynd: GSÍ

Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) varð um helgina Íslandsmeistari unglinga í höggleik í flokki 17–18 ára stúlkna. Mótið fór fram á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili dagana 20.–22. ágúst og tóku fjölmargir keppendur frá GA þátt.

Lilja Maren lék afar stöðugt golf alla þrjá keppnisdagana og lauk mótinu á samtals 224 höggum, átta höggum yfir pari. Hún lék hringina þrjá á 75, 75 og 74 höggum og sigraði að lokum með sex högga mun. Þrjár aðrar stúlkur frá GA voru einnig meðal þátttakenda í þessum flokki. Bryndís Eva Ágústsdóttir deildi  öðru sætinu á 230 höggum, Björk Hannesdóttir hafnaði í sjöunda sæti og Ragnheiður Svava Björnsdóttir í 17. sæti.

GA-krakkar nærri toppnum í fleiri flokkum

Margir keppendur voru frá GA á þessu móti og náðu góðum árangri. Í flokki 15–16 ára drengja lék Barri Björgvinsson best þeirra fimm sem kepptu fyrir hönd GA. Hann byrjaði mótið af krafti og lék fyrsta hringinn á 69 höggum og lauk svo keppni í fjórða sæti á 228 höggum. Arnar Freyr Viðarsson deildi sjöunda sæti, Egill Örn Jónsson varð níundi, Ágúst Már Þorvaldsson tíundi og Baldur Sam Harley 28. sæti.

Í flokki 17–18 ára drengja varð Patrekur Máni Ævarsson efstur GA-keppenda í sjötta sæti á 232 höggum. Hafsteinn Thor Guðmundsson deildi níunda sæti og Maron Björgvinsson varð í 17. sæti.

Yngri kylfingar, 14 ára og yngri, léku á Þorláksvelli. Þar náði Kristófer Áki Aðalsteinsson bestum árangri GA-keppenda í flokki 13–14 ára drengja og deildi þriðja sæti á 225 höggum. Bjarki Þór Elíasson varð í 19. sæti, Sesar Blær Gautason í 28. sæti og Jóakim Elvin Sigvaldason deildi 30. sæti.

Embla Sigrún Arnsteinsdóttir var eini keppandi GA í flokki 13–14 ára stúlkna og varð fjórða á 241 höggi. Í flokki 12 ára og yngri drengja hafnaði Andri Mikael Steindórsson í áttunda sæti.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15