Fróðlegir fundir í kjördæminu
05. október 2026 | kl. 07:15
Heimsmeistaramóti stúlknalandsliða í golfi lauk í Ontario í Kanada í gær. Þær Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) tóku þátt í mótinu fyrir Íslands hönd, ásamt Emblu Hrönn Hallsdóttur úr GKG. Íslenska liðið endaði í 23. sæti en þetta var í fjórða árið í röð sem íslenskt lið tekur þátt í mótinu. Tvö bestu skor liðsmanna töldu á hverjum keppnishring og lauk íslenska liðið keppni á 48 höggum yfir pari. Lið Bandaríkjanna varð heimsmeistari en bandaríska liðið lék á samtals 15 höggum undir pari.
Þetta var annað árið í röð sem Bryndís Eva tekur þátt í heimsmeistaramótinu. Fyrir Lilju Maren var þetta hins vegar frumraun á þessum vettvangi, líkt og hjá Emblu Hrönn.