Gunnar Íslandsmeistari 1967 – MYNDSKEIÐ
Stuttir þættir, Flakkað um fyrsta starfsár sjónvarpsins, birtast um þessar mundir í Ríkissjónvarpinu í tilefni þess að 60 ár eru síðan sjónvarpsútsendingar stofnunarinnar hófust. Þættirnir eru aðgengilegir á vef RÚV, m.a. bráðskemmtilegt myndskeið frá lokadegi Íslandsmótsins í golfi á Grafarholtsvelli í Reykjavík þegar Akureyringurinn Gunnar Sólnes varð Íslandsmeistari í annað skipti.
Páll Ketilsson, sá góðkunni kylfingur, vakti fyrst athygli á þættinum á vefnum kylfingur.is og nefnir að fyrri hluti mótsins fór fram á Hólmsvelli í Leiru en seinni parturinn í Grafarholti „sem var þá ekki orðinn 18 holur en það gerðist ári síðar.“
Páll segir: „Gunnar, með þáverandi Ungfrú Ísland sem kylfusvein í Grafaraholti, vann titilinn í annað skipti en það fyrra var 1961. Magnús Guðmundsson, einnig frá Akureyri, náði ekki að verja titilinn sem hann hafði unnið fjögur ár á undan þar sem hann var við vinnu við uppsetningu á skíðalyftu í Hlíðarfjalli á Akureyri.“
Vel sést á myndskeiðinu að „gæði flatanna [...] voru ekki mikil á þessum tíma, boltinn hoppaði og skoppaði í púttunum. Grafarholtið var í uppbyggingu og golfskálinn nýbyggður af mikilli reisn,“ skrifar Páll Ketilsson.
Smellið HÉR eða á myndina fyrir neðan til að horfa á myndskeiðið á RÚV frá golfmótinu.
Áframhaldandi skilningsleysi nýliða
Látum Loftbrúna vera
Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum
Félagsheimili eldri borgara á Akureyri
