Fara í efni
Umræðan

Golf: Kvennasveit GA endaði í öðru sæti

Kvennasveit Golfklúbbs Akureyrar sem varð í öðru sæti á Íslandsmóti golfklúbba. Frá vinstri: Ólafur Gylfason liðsstjóri, Lilja Maren Jónsdóttir, Ragnheiður Svava Björnsdóttir, Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Arna Rún Oddsdóttir og Kara Líf Antonsdóttir. Mynd: golf.is.

Keppni í 1. deildinni á Íslandsmóti golfklúbba lauk í dag. Kvennasveit Golfklúbbs Akureyrar (GA) stóð sig firnavel og lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn við heimastúlkur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM) en þurfti að sætta sig við tap. Silfurverðlaunin eru engu að síður frábær árangur. Karlasveit GA endaði í 7. sæti af 8 liðum.

Úrslitaviðureignin í kvennaflokki milli GA og GM varð ekki eins spennandi og vonast var til. Mótið var haldið á Hlíðavelli, heimavelli GM, og ef til vill nutu Mosfellingar þess að þekkja völlinn út og inn. Þær Arna Rún Oddsdóttir og Kara Líf Antonsdóttir léku saman í fjórmenningi og náðu góðu jafntefli í sinni viðureign. Þar voru um tíma fjórum holum undir en unnu forskotið upp smám saman og jöfnuðu viðureignina með sigri á síðustu holunni. Lilja Maren Jónsdóttir vann sína viðureign í tvímenningi örugglega og hún vann alla fimm leiki sína á mótinu. Þær Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Björk Hannesdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir töpuðu allar sinni viðureign og lokatölur urðu 3,5-1,5 GM í vil.

Karlasveit GA hafnaði í 3. sæti í sínum riðli og lék því um 5.-8. sætið í úrslitakeppninni. Þar töpuðu strákarnir sínum viðureignum og enduðu í 7. sæti. Eini sigurleikur sveitarinnar var gegn botnliði Golfklúbbs Bolungarvíkur í riðlakeppninni og svo vakti athygli að GA-sveitin gerði jafntefli gegn sveit Golfklúbbs Reykjavíkur (GR), einnig í riðlakeppninni. GR-sveitin vann allar aðrar viðureignir sínar ýmist 4-1 eða 5-0 og vann Íslandsmeistaratitilinn afar sannfærandi.

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00