Göngugatan: bílar bannaðir í allt sumar
Göngugatan í miðbæ Akureyrar verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá 1. maí til 30. september 2025. Það var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar á þriðjudaginn. Um er að ræða hluta Hafnarstrætis, spottann á milli Kaupvangsstrætis og Ráðhústorgs.
Ástand þessa hluta götunnar er mjög slæmt eins og Akureyri.net hefur fjallað um í fréttum:
Í fyrrasumar var þessi göngugatan lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja alla daga, allan sólarhringinn, frá 3. júní til loka ágúst. Aðgengi var þó tryggt fyrir P-merkta bíla, ökutæki viðbragðsaðila og aðföng rekstraraðila á afmörkuðum tíma dags og svo verður einnig nú, en þó var ákveðið að ökutækjum þyngri en þrjú tonn er óheimilt að aka um götuna.
Fellt að loka allt árið
Á fundi bæjarstjórnar var felld tillaga Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur, bæjarfulltrúa VG, þess efnis að umræddum hluta Hafnarstrætis yrði lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja allan ársins hring (að undanskildum P-merktum bílum, ökutækjum viðbragðsaðila sem og að aðföng rekstraraðila komist að á afmörkuðum tíma dags).
Jana Salóme var sú eina sem greiddi tillögunni atkvæði. Fulltrúar Samfylkingar og Framsóknarflokks sátu hjá en á móti voru allir fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokks, L-lista og Miðflokks, svo og Jón Hjaltason, óháður.
Fellt að banna nagladekk
- Fulltrúar meirihlutans, L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks létu bóka:
Við teljum í ljósi jákvæðrar reynslu á lokun göngugötunnar yfir sumarmánuði á síðasta ári, næsta skref vera að lengja það tímabil til samræmis við komur skemmtiferðarskipa til bæjarins. Frekari lokun þarfnist meiri undirbúnings og sé ekki tímabær.
- Jana Salóme fulltrú VG lét bóka eftirfarandi:
Í ljósi ástands þess hluta Hafnarstrætis sem í daglegu tali er vísað til sem göngugötu tel ég ekki forsvaranlegt að halda áfram að hleypa umferð vélknúinna ökutækja í gegn. Þá tel ég einnig að það sé gott fyrir blómlega bæinn okkar að loka fyrir umferð vélknúinna ökutækja allan ársins hring. Ég fagna þó lengingu á tímabili lokunar og tel það farsælt skref þó ég hefði viljað ganga lengra.
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúar Framsóknarflokks létu bóka:
Við erum opin fyrir því að skoða lokun göngugötunnar árið um kring en aðeins að undangengnu samráði við hagaðila í miðbænum, þar sem mismunandi sjónarmiðum er stefnt saman og þau vegin. Við teljum mikilvægt að taka ákvörðun um framtíðarskipulag göngugötunnar og svæðisins í kring, svo umhverfis- og mannvirkjasvið geti hafið hönnun og ráðist í mikilvægar endurbætur. Vegna ástandsins á götunni þá er nauðsynlegt að setja á hana þungatakmarkanir, og má benda á að um allt land tíðkast að setja slíkar takmarkanir á vegi þegar þörf krefur. Við teljum það hins vegar ekki raunhæft að banna notkun nagladekkja í þessari einu götu, hvorki hvað varðar eftirfylgni né þegar kemur að því að miðla slíku banni til bæjarbúa og gesta.
- Hilda Jana Gísladóttir, Samfylkingu, lét bóka:
Tillaga skipulagsráðs að verklagsreglum fyrir tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja er enn eitt skref í jákvæðri þróun. Vonandi verður einnig vilji til þess að loka litlum hluta Skipagötu á sama tímabili, enda gæti það aukið gæði útiveru og möguleika til viðburðarhalds að sumarlagi.
Hins vegar er yfirborð göngugötunnar orðið það slæmt að ekki er lengur hægt að viðhalda umferð á henni án umfangsmikilla viðgerða. Verði slíkum viðgerðum ekki lokið fyrir haustið er erfitt að sjá hvernig hleypa á umferð vélknúinna ökutækja um götuna á ný án þess að hætt sé við því að t.a.m. snjóbræðslukerfi eyðileggist enn frekar.
Löngu tímabært er að fara í allsherjar endurbætur á göngugötunni og Ráðhústorgi, á grundvelli heildarsýnar, fremur en að reyna í sífellu einhvers konar bútasaum með minni háttar lagfæringum. Tryggja þarf nauðsynlegt fjármagn til þess að svo geti orðið.
Fullveldi
Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt
Aðflugsljós eru ekki gæluverkefni
Alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum