Fara í efni
Umræðan

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Þegar Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn mynduðu meirihluta í bæjarstjórn í vor settum við málefnasamningi okkar yfirskriftina Framtíð, atvinna og velferð. Það voru ekki orð valin af handahófi. Þau lýsa því samfélagi sem við viljum byggja upp á Akureyri og þeirri forgangsröðun sem við viljum sjá í rekstri bæjarins næstu árin. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun 2027–2030, sem lögð var fram í bæjarstjórn til fyrstu umræðu á þriðjudag, er fyrsta heildstæða áætlun þessa meirihluta og þar taka þessar áherslur á sig mjög skýra mynd.

Við stöndum á traustum grunni. Árið 2027 er gert ráð fyrir að tekjur samstæðunnar verði um 44 milljarðar króna og rekstrarniðurstaða jákvæð um tæplega 1,55 milljarða. Veltufé frá rekstri verður um 5,8 milljarðar. Skuldaviðmið samstæðunnar verður 95,8% og lækkar samkvæmt áætlun í 88,4% árið 2030 sem er vel undir 150% hámarksviðmiði sveitarstjórnarlaga.

Sterkari staða má þó ekki verða ávísun á minna aðhald. Þvert á móti. A-hluti bæjarins stefnir í 413 milljóna króna afgang árið 2027 en halli á aðalsjóði sýnir að áfram þarf að vinna að umbótum í rekstrinum. Þess vegna erum við að hefja stjórnsýsluúttekt þar sem skipulag, verkaskipting og nýting fjármuna verða skoðuð með það að markmiði að bæta rekstur og þjónustu. Í þeirri vinnu munu raddir starfsmanna sveitarfélagsins og íbúanna skipta miklu máli.

Ábyrgur rekstur snýst að sjálfsögðu líka um að gæta að fjárhagslegri stöðu heimilanna og því efnahagsumhverfi sem fólk býr við. Almennar gjaldskrárhækkanir verða að hámarki 2,5% og gjaldskrár sem hafa bein áhrif á barnafjölskyldur verða að mestu óbreyttar. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði verður áfram 0,28%, eftir að hafa verið lækkaður úr 0,31% á þessu ári. Jafnframt verður lögð fram tillaga á milli umræðna um að lækka álagningarhlutfall atvinnuhúsnæðis úr 1,61% í 1,59%.

Þetta eru pólitískar ákvarðanir. Við teljum ekki rétt að mæta hverri kostnaðarhækkun með því að senda einfaldlega hærri reikning til heimilanna og fyrirtækjanna. Sveitarfélagið þarf líka að gera kröfur til sjálfs sín um ábyrgð og aðhald.

Framkvæmdir fyrir hátt í 23 milljarða

Við ætlum að halda áfram að byggja upp. Á tímabilinu 2027–2030 er ráðgert að fjárfesta fyrir um 22,7 milljarða króna í A- og B-hluta. Þetta er mikil fjárfesting en hún endurspeglar líka þá einföldu staðreynd að Akureyri er samfélag í vexti og við ætlum að vera tilbúin fyrir þann vöxt.

Mesta ábyrgð ber sveitarfélagið gagnvart fólkinu sem hér býr. Tveir þriðju hlutar útgjalda aðalsjóðs fara til fræðslu og velferðar. Um 14,8 milljarðar fara til fræðslu- og uppeldismála og 7,9 milljarðar til velferðarmála. Þá fara 3,8 milljarðar til æskulýðs- og íþróttamála og 1,4 milljarðar til menningarmála.

Á næstu árum verður haldið áfram uppbyggingu skólahúsnæðis, meðal annars með framkvæmdum í Síðuskóla og við Giljaskóla. Uppbygging íþróttamannvirkja heldur áfram hjá KA og Þór, ráðist verður í endurbætur á gervigrasi í Boganum og Glerárlaug og undirbúningur er þegar hafinn að fjölnota íþróttahúsi Þórs. Samkvæmt framkvæmdaáætlun fara um 4,4, milljarðar til æskulýðs- og íþróttamála á tímabilinu.

Vöxtur sveitarfélagsins

Við ætlum líka að undirbúa bæinn fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa. Fjárfest verður í nýjum hverfum en um leið í endurnýjun eldri hverfa, umferðaröryggi og stígakerfi. Móahverfi og Holtahverfi eru stór verkefni, Oddeyrin verður áfram endurnýjuð og samtals fara um 3,3 milljarðar í uppbyggingu nýrra hverfa á tímabilinu.

Vöxtur Akureyrarbæjar verður að vera öllum til heilla. Þess vegna fjárfestum við áfram í félagslegu húsnæði og styðjum við uppbyggingu almennra leiguíbúða. Við vinnum að nýju húsnæði fyrir Brekkukot og undirbúum viðbyggingu við Skógarlund.

Og við horfum lengra fram á veginn. Uppbygging á Dysnesi, fjárfestingar í veituinnviðum og markviss sókn í fleiri atvinnulóðir, nýsköpun og orku- og gagnatengda starfsemi eiga að styrkja atvinnulífið og fjölga tækifærum til verðmætasköpunar.

Ábyrg fjármálastjórn

Þetta er í mínum huga kjarninn í fjárhagsáætluninni. Við ætlum að sýna ábyrgð í rekstri án þess að hætta að sækja fram. Við ætlum að hlífa heimilunum eins og kostur er, bæta þjónustuna og fjárfesta af krafti í framtíðinni.

Akureyrarbær á að vera bær sem vex, bær sem þorir að sækja fram og bær þar sem gott er að búa og starfa. Framtíð, atvinna og velferð eru ekki innantóm slagorð. Þau eiga og munu sjást í verki hjá nýrri bæjarstjórn Akureyrarbæjar.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir er bæjarstjóri á Akureyri

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30