Fara í efni
Umræðan

Gauti Jóhannesson vill í oddvitasætið

Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, hins nýja sveitarfélags á Austurlandi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í efsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í haust. Kristján Þór Júlíusson, oddviti flokksins í kjördæminu og ráðherra, tilkynnti um liðna helgi að hann hygðist draga sig í hlé.

„Að baki þessari ákvörðun er einlægur vilji minn til að láta gott af mér leiða í kjördæminu og sá eindregni stuðningur og hvatning sem ég hef fengið víða að og er þakklátur fyrir,“ segir Gauti í tilkynningu í morgun.

Gauti segir mikilvægt að þingmenn Sjálfstæðisflokksins endurspegli sem best kjördæmið allt, hafi ólíkan og fjölbreyttan bakgrunn og innsýn í þau margbreytilegu viðfangsefni sem við er að eiga hvort heldur það er í fjölmennustu þéttbýliskjörnunum eða dreifbýlinu.

Tilkynning Gauta í heild er svohljóðandi:

„Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna kosninga til Alþingis sem fram fara 25. september. Að baki þessari ákvörðun er einlægur vilji minn til að láta gott af mér leiða í kjördæminu og sá eindregni stuðningur og hvatning sem ég hef fengið víða að og er þakklátur fyrir.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitt meirihlutann í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi Múlaþingi frá því kosið var til sveitarstjórnar í haust. Í aðdraganda þeirrar ákvörðunar að bjóða mig fram til þings hef ég verið í góðu sambandi við samstarfsfólk mitt á svæðinu og efast ekki um að það góða fólk mun halda áfram öflugu starfi flokksins í sveitarfélaginu fari svo að ég hverfi til starfa á öðrum vettvangi.

Að mínum dómi er mikilvægt er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins endurspegli sem best kjördæmið allt, hafi ólíkan og fjölbreyttan bakgrunn og innsýn í þau margbreytilegu viðfangsefni sem við er að eiga hvort heldur það er í fjölmennustu þéttbýliskjörnunum eða dreifbýlinu.

Í starfi mínu sem sveitarstjóri síðastliðin tíu ár, við markaðssetningu sjávarafurða og þar áður sem skólastjóri hef ég aflað aflað fjölbreyttrar og mikilvægrar reynslu sem ég tel að muni koma til góða nái ég kjöri.

Áherslur mínar eru og hafa verið byggða- og atvinnumál í víðum skilningi. Þá má gera enn betur hvað varðar stafræna opinbera þjónustu til hagsbóta fyrir íbúa á landsbyggðinni. Síðast en ekki síst er ég talsmaður einföldunar á regluverki með það fyrir augum að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og auðvelda íbúum um landið allt líf og störf, en íþyngja þeim ekki.

Markmið Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi er að ná þremur þingsætum í kosningunum í haust. Við eigum ekki að sætta okkur við minna. Til að það megi verða þurfum við öll að leggjast á eitt, halda á lofti þeim gildum og málefnum sem við stöndum fyrir og tala skýrt. Ég er tilbúinn að leiða sjálfstæðisfólk í Norðausturkjördæmi á þeirri vegferð.“

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00