Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?
Stundum þarf ekki stórar framkvæmdir eða milljarðafjárfestingar til að gera bæinn okkar betri. Stundum þarf fyrst og fremst góða hugmynd, hentugt svæði og vilja til að prófa eitthvað nýtt.
Við Mýrarveg á Akureyri er svæði sem gæti orðið að einhverju miklu meira en það er í dag.
Þar væri hægt að breyta vannýttu svæði í samfélagsgarð þar sem fólk á öllum aldri gæti komið saman, ræktað, hreyft sig og notið útiverunnar. Einnig væri hægt að tengja garðinn við nærliggjandi græn svæði og skapa þannig samfellt útivistarsvæði fyrir íbúa hverfisins og aðra Akureyringa.
Samfélagsgarðar hafa verið byggðir upp víða með það að markmiði að nýta vannýtt svæði betur, skapa aðstæður fyrir meiri útiveru, efla tengsl fólks og bæta lífsgæði. Eftirfarandi tvær myndir eru teknar af samfélagsfarði í Osló nú síðsumars.

Hugmyndin er einföld. Í stað þess að fólk rækti hvert í sínu horni er skapaður sameiginlegur vettvangur þar sem einstaklingar, fjölskyldur og hópar geta ræktað matjurtir og blóm, hist og deilt reynslu og þekkingu.
Möguleikinn til að leigja garð til að rækta er nú þegar til staðar á vegum Akureyrarbæjar hjá Gömlu gróðrarstöðinni. En hugmyndin um samfélagsgarð snýst ekki bara um að finna stað fyrir ræktun, hann snýst um fólkið sem þangað sækir og nærumhverfið.

Við tölum mikið um mikilvægi þess að vinna gegn félagslegri einangrun. Við tölum um lýðheilsu, hreyfingu, sjálfbærni, umhverfismál og mikilvægi þess að eldri borgarar geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu.
Samfélagsgarður getur sameinað alla þessa þætti á einum stað.
Þess vegna er sérstaklega áhugavert að horfa til Mýrarvegar.
Úr snjógeymslu í samfélagsgarð
Við norðurenda Mýrarvegar eru nokkur græn svæði sem bjóða upp á mikla möguleika.
Svæðið sunnan við blokkirnar við Mýrarveg 111–117 er í dag meðal annars notað undir snjógeymslu á veturna og möl og annað efni vegna nálægra framkvæmda á sumrin. Þegar snjórinn bráðnar sitja gjarnan eftir óhreinindi og rusl, og vegna þess hve mýrlent svæðið er getur það verið blautt og subbulegt langt fram eftir sumri.
Er þetta besta nýtingin á svæðinu?
Þarna gætu í staðin verið upphækkuð ræktunarbeð sem henta fólki á öllum aldri, lítil gróðurhús, borð og bekkir og fallegur göngustígur í gegnum gróðurinn.

Norðan við svæðið eru fjölbýlishús þar sem meðal annars býr eldra fólk og sunnan þess er Kaupangur með fjölbreyttri verslun og þjónustu. Þarna er því nú þegar fólk, þjónusta og byggð.
Það sem gerir þessa staðsetningu spennandi er að þarna eru nokkur græn svæði sem bjóða upp á áhugaverða möguleika. Með tiltölulega einföldum aðgerðum mætti tengja þau saman og skapa fjölbreytt útivistarsvæði með samfélagsgarð sem hjarta svæðisins.
Það sem vantar til að þessi svæði séu betur nýtt, er ástæða eða tilefni til að fá fólk til að staldra við.
Samfélagsgarður gæti skapað þá ástæðu.
Hugsum aðeins stærra

Verkefni að þessu tagi þyrfti ekki að takmarkast við eitt svæði, heldur væri hægt að þróa svæðið áfram og tengja saman með göngustígum nokkur græn nærliggjandi svæði.
Bak við blokkirnar er t.a.m. grænt svæði, þar sem þegar liggur malarstígur. Þar mætti koma fyrir ræktunarbeðum fyrir íbúa blokkanna og með auknum gróðri mætti jafnframt skapa skjól og tryggja ákveðið næði fyrir íbúa á neðstu hæðum húsanna.
Norðan við Mýrarveg 117 væri síðan hægt að skapa annars konar samverusvæði. Þar gætu verið bekkir, skjól og ræktunarbeð, en einnig einföld líkamsræktartæki, pétanque-völlur eða útiskák.
Á nærliggjandi grónu svæði mætti bæta göngustíga og koma fyrir borðum og bekkjum inni á milli trjánna. Þar sjást nú þegar slóðar eftir hjólreiðafólk og því mætti skoða hvort þar gæti orðið lítil merkt hjólaleið.
Svo er það klapparsvæðið með útsýni yfir Eyjarfjörðinn en þar er hægt að njóta fallegra sólarlaga. Við Kambsmýri er einnig leikvöllur fyrir börn. Með einföldum úrbótum mætti gera svæðið enn meira aðlaðandi til útiveru og lautarferða.
Þetta eru ekki einangruð svæði. Göngustígar eða slóðar tengja þau nú þegar saman og tengja um leið saman Klettaborgarhverfi, Mýrarhverfi og Gerðahverfi.
Af hverju ekki að nýta það?
Við gætum skapað grænan þráð í gegnum hverfið – leið þar sem fólk gengur á milli ræktunar, útivistar, leiks, hreyfingar og hvíldar.
Fólk sem hefði engan áhuga á að rækta gæti samt komið til að ganga, hreyfa sig, spila skák, setjast á bekk eða spjalla.
Þannig ræktum við ekki aðeins grænmeti, við ræktum samfélag.
Þetta er lýðheilsumál
Það er auðvelt að setja samfélagsgarð í flokkinn „falleg hugmynd“. En málið er stærra en svo.
Við vitum hversu mikilvæg hreyfing og útivera eru fyrir líkamlega og andlega heilsu. Við vitum líka að einmanaleiki og félagsleg einangrun geta haft mikil áhrif á líðan fólks.
Það þarf ekki alltaf skipulagða dagskrá til að koma fólki saman. Stundum þarf einfaldlega að skapa stað þar sem eðlilegt er að hittast.
Samfélagsgarður getur verið slíkur staður
Þú ferð út til að vökva gulræturnar en hittir nágranna þinn og spjallar í tuttugu mínútur. Þú ætlar í stuttan göngutúr en sest á bekk og hittir gamlan kunningja.
Þetta eru litlu augnablikin sem búa til samfélag.
Nýir íbúar gætu kynnst nágrönnum sínum. Þannig verður samfélagsgarður ekki aðeins staður þar sem plöntur vaxa – heldur staður þar sem tengsl milli fólks geta vaxið líka.
Vel heppnaðir samfélagsgarðar geta haft jákvæð áhrif langt út fyrir ræktunina sjálfa. Þeir geta stuðlað að aukinni útiveru og hreyfingu, skapað tækifæri til félagslegra samskipta og styrkt tilfinningu fólks fyrir því að tilheyra sínu hverfi.
En stærsti ávinningurinn væri ef til vill sá sem erfiðast er að mæla: fleiri tilefni fyrir fólk til að hittast.
Í amstri hversdagsins getur verið ótrúlega verðmætt að eiga stað í nærumhverfinu þar sem engin krafa er gerð, þú mætir bara ef þú hefur tíma og áhuga.
Akureyrarbær: gefum þessari hugmynd tækifæri
Á Akureyri hefur komið upp hugmynd um að koma á fót slíkum samfélagsgarði, með það að markmiði að auka útiveru og samveru bæjarbúa og með sérstaka áherslu á eldri íbúa. Tillögur þess efnis hafa ekki enn fengið brautargengi, en hugmyndin er þess virði að skoða nánar.
Með nýju fólki í brúnni er mögulega kominn tími til að skoða hana aftur.
Ekki þarf að ráðast strax í umfangsmiklar framkvæmdir. Það þarf ekki að fullhanna öll svæðin frá fyrsta degi.
Af hverju ekki að byrja smátt?
Velja afmarkað svæði t.d. við Mýrarveg. Setja þar upp nokkur upphækkuð ræktunarbeð, bekki og borð. Bjóða íbúum, félagasamtökum og öðrum áhugasömum að taka þátt. Prófa verkefnið í tvö eða þrjú sumur og meta síðan árangurinn.
Ef áhuginn er lítill höfum við lært eitthvað.
Ef áhuginn er mikill höfum við skapað grunn að einhverju sem getur vaxið og dafnað um ókomin ár.
Sveitarfélag þarf ekki alltaf að vita nákvæmlega hvernig verkefni endar áður en það byrjar. Stundum þarf að skapa umgjörðina og leyfa íbúunum sjálfum að fylla hana lífi.
Það væri einmitt við hæfi fyrir samfélagsgarð. Svæðið er til staðar. Íbúarnir eru til staðar. Göngustígarnir eru að stórum hluta til staðar. Hugmyndin er til staðar. Nú þarf viljann til að prófa.

Við skorum því á nýjan meirihluta hjá Akureyrarbæ að dusta rykið af hugmyndinni um samfélagsgarð og skoða af alvöru hvort Mýrarvegur geti orðið tilraunasvæði fyrir slíkt verkefni.
Byrjum smátt. Fáum íbúana að borðinu. Prófum okkur áfram. Lærum af reynslunni og leyfum verkefninu að vaxa ef samfélagið tekur því vel.
Kannski verður til staður, þar sem eldri íbúi miðlar þekkingu sem annars hefði glatast. Þar sem nýr íbúi eignast sinn fyrsta kunningja í hverfinu. Þar sem fólk sest niður á sumarkvöldi, horfir yfir garðinn og spjallar við nágranna sína.
Eftirfarandi hópur vinnur saman að skýrslu um Samfélagsgarða hugmyndina sem stefnt er á að leggja fyrir bæjarstjórn, ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessari vinnu hvetjum við þig til að setja þig í samband við eitthvert okkar:
- Eyrún Gígja Káradóttir - Sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun
- Heiðrún Sigurðardóttir - Forstöðumaður Matjurtagarða Akureyrar
- Valur Þór Hilmarsson – Forstöðumaður Lystigarðsins á Akureyri
- Fjóla Sigurðardóttir - fyrir hönd stjórnar EBAK
- Margrét Alfreðsdóttir - fyrir hönd stjórnar EBAK
Eyrún Gígja Káradóttir er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi
Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum
Námaskarð, öryggismál