Fara í efni
Umræðan

Bókasöfnin okkar

Bókasöfn eru alls konar og bjóða upp á margvíslega þjónustu. Á bókasöfnum:

  • eru öll velkomin og kostar ekkert að koma inn.
  • hefur fólk aðgengi að ókeypis fræðslu og afþreyingu.
  • eru í boði fjölbreyttir viðburðir og klúbbastarf þar sem fólk getur kynnst öðrum og myndað ný tengsl.
  • er lesefni fyrir alla aldurshópa og aðgengi að hljóðbókum og rafbókum í gegnum Rafbókasafnið.
  • getur fólk aflað sér traustra heimilda og notið við það aðstoðar starfsfólks.
  • eru öll jöfn og hafa jafnan rétt og aðgengi að upplýsingum.

Markmiðið með starfsemi bókasafna er alltaf að efla samfélögin sem þau starfa í, hvort sem það eru skólasamfélög, sveitarfélög eða sérhæfðar rannsóknarstofnanir. Að efla þekkingu, skilning, kunnáttu og lífsgæði, það er hlutverk bókasafna.

Þrátt fyrir fjölbreytt hlutverk bókasafna eru bækurnar og lestur eru þó alltaf hjartað í starfseminni, enda eru lestur og læsi ein grunnforsenda þess að geta tekið virkan þátt í lýðræðissamfélagi. Í gegnum lestur dýpkum við þekkingu okkar, bætum orðaforða, lærum að setja okkur í spor annarra og eflum samkennd. Gott aðgengi að fjölbreyttu lesefni skiptir sköpum og á bókasöfnum höfum við aðgengi að lesefni fyrir alla aldurshópa.

Bókmenntir og lestur geta verið grunnur að dýmætum samverutíma, hvort sem það er að lesa með barni í háttatímanum, taka þátt í bókaklúbbum eða spjalla við vinnufélaga um bækurnar sem þið eruð að lesa og hlusta á.

Í dag er alþjóðlegur dagur UNESCO um upplýsingaaðgengi og í dag halda íslensk bókasöfn Bókasafnsdaginn hátíðlegan.

Bókasöfnin eru sameign okkar allra og þar er eitthvað fyrir öll. Fyrir fullorðna og börn, fyrir unga sem aldna. Lestur er bestur – á öllum aldri. Komdu við á þínu bókasafni í dag.

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir er formaður Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15