Fara í efni
Umræðan

Gauti ekki á lista sjálfstæðismanna

Njáll Trausti Friðbertsson, til vinstri, og Gauti Jóhannesson buðu sig fram í efsta sæti listans.

Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, sem varð í þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í gær mun ekki taka sæti á lista flokksins fyrir alþingiskosningarnar í haust.

„Ég get staðfest að þetta eru mér vonbrigði. Ég stefndi á oddvitasætið,“ sagði hann við Akureyri.net eftir að úrslitin voru tilkynnt í nótt. Hann sagðist þá myndu taka sér tíma til að hugsa málið, en bregðast við niðurstöðunni fljótlega. Hann tilkynnti svo á Facebook fyrir stundu að hann sæktist ekki eftir sæti á listanum.

„Kæru vinir.

Nú þegar niðurstöður liggja fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur kjördæmi er mér efst í huga auðmýkt og þakklæti til þeirra fjölmörgu sem lögðu mér lið í baráttunni.

Ég vil einnig þakka þær góðu móttökur sem ég hef fengið í kjördæminu undanfarnar vikur, alla kaffisopana, kruðeríið og spjallið. Á Norður- og Austurlandi býr mikið af öflugu og góðu fólki, um það get ég vitnað fyrstu hendi.

Meðframbjóðendum mínum þakka ég drengilega baráttu og óska þeim velfarnaðar. Úrslitin eru mér vonbrigði en vilji kjósenda er skýr og við niðurstöðuna verður að una.

Ég sóttist eftir að leiða listann, það varð ekki og af þeim sökum mun ég ekki sækjast eftir að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins við kosningar til Alþingis í haust.“

Smellið hér til að lesa fréttina frá því í nótt um niðurstöðuna úr prófkjörinu.

„Verður engin þjóðaratkvæðagreiðsla“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
11. maí 2025 | kl. 20:00

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu

Clara Ganslandt skrifar
09. maí 2025 | kl. 16:30

Stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu í Víðilundi

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
08. maí 2025 | kl. 13:45

Líflínan

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:00

Samstaða, kjarkur og þor

Björn Snæbjörnsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 15:00

Um nesti, fótbolta og fótbolta kvenna

Þór Karls skrifar
30. apríl 2025 | kl. 06:00