Fara í efni
Umræðan

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Á dögunum voru kynntar verðlaunatillögur í samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis með lifandi grænt miðbæjarsvæði að leiðarljósi.

Flottar tillögur voru sendar inn og margar frjóar hugmyndir t.d. um línur og ása, yndismannvirki og byggingarmagn reits litu dagsins ljós. Samkeppnin er til sóma þeim sem að stóðu og ekki síður öflug kynning Akureyrarbæjar sem skapar umræðu og leiðir vonandi til bestu niðurstöðu.

Eigendur svæðisins, þ.e. Akureyringar allir hafa auðvitað sterka skoðun á fyrrgreindu og hafa verið duglegir að tjá sig undanfarna daga sem er vel. Viðbrögð misjöfn, einn vill byggja stórt, annar smátt, húrra og hræðilegt heyrist, gráa kumbalda ber á góma, sum okkar elska „síki“ meðan önnur hata þau o.s.frv., munum bara að stundum má gera bæði.

Úr öllum kommentagrúanum má þó lesa þá þrá bæjarbúa að upplifa iðandi mannlíf miðbæjar og geta spókað sig þar á stuttermabol í sól og logni.

Til að uppfylla þessa þrá koma skjólstæðingar okkar hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga þ.e. blessuð trén sterk inn. Í skjóli þeirra má almennt fjölga útivistardögum svæðis sem og lengja þann tíma hvers sólarhrings sem við léttklædd getum setið úti í notalegheitum.

Á meðfylgjandi myndum sem teknar eru í Kjarnaskógi má glöggt sjá hvernig trén baða gesti sína í skjóli, halda þétt utan þá og bjóða upp á stemningu sem er pínu „erlendis“. Aukinheldur býr skógurinn einnig að línum og ásum sem virka, yndismannvirkjum, endalausu logni o.s.frv. og já … leyfum líka að fljóta með mynd sem er fengin úr einni verðlaunatillögunni sem sýnir nýtísku áhorfandabrekku með tengsl við innviði skipulagssvæðis, gott dæmi um frjóa hugsun sem kanske þróast yfir í eitthvað stærra.

Hér hjá Skógræktarfélaginu finnst okkur hin lifandi grænu skipulagsdrög skorta meira gras og fleiri tré. Glæsilegar gervigreindarmyndir af 12 metra breiðum stakstæðum trjám sem prýða margar tillögurnar gefa kanske ekki raunsanna mynd af endanlegu gróðurríki skipulagssvæðis.

Með lognið að leiðarljósi leggjum við því til að byggingarhlutfall reits og trjáhlutfall reits verði skilyrt hið sama þ.e. hvort um sig fái 50 % vægi!

Akureyri - Alltaf logn!

Ingólfur Jóhannsson er framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga

Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi, sunnudagur 3. ágúst 2025. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi, sunnudagur 3. ágúst 2025. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00