Fara í efni
Pistlar

Víti til varnaðar

EYRARPÚKINN - 4

Mömmu fannst skrýtið hvað mér fór aftur í lestri og var ég orðfár um veruna hjá Hreiðari og málaði ekki námið eins björtum litum og skreyttu bókarkápu meistaraverksins Litli læknissonurinn.

Þar stendur bláklæddur maður á hvítri skyrtu með rauða slaufu og gráan hatt í hendi en skórnir gljáandi og bendir með vísifingri á litla læknissoninn sem stendur niðurlútur með pensil og málningarfötu og hefur atað út hárið, nefið og peysuna.

Þá bók gat ég ekki litið réttu auga frekar en Snjalla snáða og Bjalla hringir og alltaf leið mér í brjóst þegar Jenna las fyrir okkur úr Öddubókunum blíð á manninn.

Fannst mér skólastjóri sverma fyrir krökkum betra fólks af Brekkunni á meðan Eyrarpúki með skítugar neglur átti sér ekki viðreisnar von.

Náði kennslan hámarki þegar Hreiðar teiknaði hús á töfluna og var Hreiðarsskóli í fegraðri mynd og kominn kjallari undir.

Í risinu bjuggu Jóhanna og Barbara með tæp tvöhundruð atkvæði og fengu koss á kinnar.

Svo voru einhverjir Brekkusniglar á hæðunum en í kolakompu kjallarans hímdi ég einn með sextíuogfjögur atkvæði og kallaði Hreiðar það víti til varnaðar.

Ég dró stóran apótekara úr pússi mínu og hlakkaði til að komast í bolta að skóla loknum.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Víti til varnaðar kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Tímamót og krossgötur

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
29. ágúst 2026 | kl. 12:00

Blásvartir og blautlega þenkjandi

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
29. ágúst 2026 | kl. 06:00

Kóngagífur og fleiri risar

Sigurður Arnarson skrifar
26. ágúst 2026 | kl. 09:30

Það er aldrei of seint að hreyfast betur

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
25. ágúst 2026 | kl. 06:00

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Við elskum þessar mellur

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
22. ágúst 2026 | kl. 06:00