Hafnarstræti 23b – 100 ára hús VIII
Schiöthshús við Hafnarstræti 23, er eitt af glæstari húsum bæjarins og stendur á rótgróinni lóð, við mörk hins upprunalega Akureyrarkaupstaðar. Lóðin á sér um 200 ára sögu og þar reis upprunalega hús árið 1834, sem brann árið 1903, og núverandi hús, veglegt timburhús í sveitserstíl var reist. Það er þó ekki til umfjöllunar að þessu sinni heldur öllu íburðarminna bakhús, sem er 100 ára í ár, Hafnarstræti 23b (sums staðar nefnt 23a).
Hafnarstræti 23b reisti Axel Sciöth bakarameistari árið 1926 en hann fékk haustið 1925 leyfi til að reisa tvílyft geymsluhús á baklóð sinni (Hafnarstræti 23), að ummáli 15,5x7m með hallandi þaki til vesturs. Húsið skyldi byggjast úr steinsteypu (sbr. Bygg.nefnd. Ak. 1925: nr. 575). Ekki liggja fyrir heimildir um hönnuð hússins, en nokkrum árum síðar leitaði Axel til Tryggva Jónatanssonar með húsateikningar, þegar hann reisti söluturn á Oddeyri. Það er þó ekki víst, að Tryggvi hafi teiknað þetta hús fyrir Axel.

Hafnarstræti 23b er tvílyft steinsteypuhús með einhalla aflíðandi þaki (skúrþaki). Stendur húsið fast upp í brekkurótum og neðri hæð niðurgrafin að vestanverðu. Veggir eru múrsléttaðir og einfaldir þverpóstar í gluggum. Í upphafi var nokkurs konar ferkantað kögur á þakkanti framhliðar, líkt og á kastala, en síðar var þaki breytt, og fékk það lag sem það nú hefur. Fyrir fáeinum árum var þak aftur endurnýjað, hækkað að nokkru og nýir gluggar settir í húsið. Á norðurhlið er einnar hæðar viðbygging, 2,72x4,82m að grunnfleti. Norðurhlið hússins er ekki hornrétt því húsið er ívið lengra vestanmegin en austan, skv. teikningum er lengdin 15,66m að austan en 15,95m að vestan en breidd hússins er 7,21m (skv. teikningum Rögnvaldar Harðarsonar frá 2022).

Axel Henrik Riddermann Schiöth var fæddur þann 14. febrúar árið 1870 á Akureyri. Foreldrar hans voru danskir, þau Henrik P.F. Schiöth bakarameistari og kona hans Anne Katrine Larsen. Hann nam bakaraiðn í Kaupmannahöfn og starfaði við þá iðn alla tíð auk þess sem hann fékkst við verslunarrekstur og stundaði búskap. Þá var hann einnig mjög virkur í hvers kyns félags- og embættisstörfum, kom m.a. að stofnun Iðnaðarmannafélags Akureyrar og sat þar lengi í stjórn. Hann var virkur í íþrótta- og menningarlífi bæjarins, stóð m.a. fyrir leiksýningum og Knattspyrnufélag Akureyrar, KA, var stofnað á heimili hans í ársbyrjun 1928. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1930 (sbr. án. höf. 1959: 5). Axel Schiöth lést í apríl 1959 á 90. aldursári. Axel var kvæntur Margrethe Schiöth (f. Friis, 1871) frá Vejen á Jótlandi í Danmörku. Hún var ekki síður mektarborgari og virt í bæjarlífinu eins og eiginmaður hennar en garðrækt var henni hugleikin og vakti garður Schiöth – hjónanna mikla athygli, m.a. dönsku konungshjónanna, þegar þau heimsóttu Akureyri, sumarið 1926. Þótti þeim svo athyglisvert, að sjá svo gróskumikinn garð svo norðarlega, að þau vildu endilega fá að sjá hvernig þarna væri innandyra. Eftir heimsókn þeirra tókst vinskapur með drottningunni og frú Schiöth (sbr. Steindór Steindórsson 1993:108). Margrethe Schiöth var ein af forvígiskonum Lystigarðsins árið 1912 og annaðist um hirðu hans árum saman. Hún var kjörin heiðursborgari Akureyrar árið 1941, er hún varð sjötug. Margrethe Schiöth lést 20. júní 1962 og vantaði þá fimm vikur í 91 árs afmælisdaginn.

Auk garðs Schiöth-hjónanna hafa konungshjónin, sem á ferð voru hér sumarið 1926, einnig barið augum hið nýreista vörugeymsluhús bakarísins á baklóðinni en ekki endilega víst, að þeim hafi verið boðið að skoða það sérstaklega. Það var hins vegar matsmönnum Brunabótafélagsins í janúar 1927. Var húsinu lýst sem hér segir: Íbúðar – og geymsluhús á baklóð hússins nr. 23. 2 hæðir með höllu þaki, neðri hæðinni er skipt í þrennt og notað til geymslu. Á efri hæðinni eru fjórar stofur, eldhús, búr, baðherbergi, gangur og tvö geymsluherbergi. Einn reykháfur [1 kolaofn], vatns, skólp- og rafleiðsla. Lengd 16,3m, breidd 6,9m, hæð 6 m, tala glugga 14. Útveggir úr steinsteypu þak úr timbri, járnklætt (Brunabótafélag Íslands 1927: nr. 207). Enda þótt frá upphafi hafi greinilega verið fullinnréttuð íbúð á efri hæð er enginn skráður til heimilis hér fyrr en árið 1938. Það þýðir þó ekki, að enginn hafi búið hér fram að því; hér gæti fólk mögulega hafa búið tímabundið, t.d. bakarísstarfsfólk, vinnufólk Schiöth-hjóna eða annað venslafólk og ekki ratað í manntal. Þá gæti einnig verið, að íbúar bakhússins hafi þennan fyrsta rúma áratug verið skráð til heimilis undir Hafnarstræti 23, þ.e. ekki gerður greinarmunur á fram – og bakhúsi. Alltént verður það ekki fullyrt með óyggjandi hætti að enginn hafi búið hér fyrir 1938, þó manntöl bendi til þess. Fyrstu skráðu íbúar Hafnarstrætis 23b, árið 1938 eru þau Þorgeir Einar Jónsson mótoristi (vélstjóri), fæddur 1902 á Saurum í Þingeyrarhreppi og Bjarnhildur María Bjarnadóttir húsfrú, fædd 1900 á Svalbarði í Auðkúluhreppi. Synir þeirra voru Hálfdán, Jón, Friðþjófur, Kristján og Styrmir, allir með ættarnafnið Haukdal. Fjölskyldan hafði hingað flust frá Þingeyri. Næstu árin, 1939-41 er Hafnarstræti 23b ekki að finna í manntölum en árið 1942 eru búsett hér þau Stefán Valdimar Sveinsson skósmiður, fæddur 1890 í Krossavík í Vopnafirði og Guðfinna Hallgrímsdóttir húsfrú, fædd 1894 í Unaósi, í Hjaltastaðaþinghá ásamt dóttur Guðfinnu, Lilju Hallgrímsdóttur. Hún var fædd 1919 á Hvannstóði í Borgarfirði eystri, auk nýfæddrar dóttur Lilju sem síðar hlaut nafnið Svala Þyrí. Fjölskylda þessi að austan er skráð hér til heimilis til ársins 1944, árið eftir er húsið ekki að sjá í manntölum en 1946 eru íbúar hér þau Pálmi Jón Karlsson f. 1912 á Mosfelli í Svínavatnshreppi, Bryndís Baldvinsdóttir, f. 1918 á Dalvík og dóttir þeirra Baldrún Jóhanna. Hafa síðan ýmsir átt heima hér í lengri eða skemmri tíma.

Sem fyrr segir var geymslurými á neðri hæð en íbúð á þeirri efri, en árið 1968 var neðri hæð breytt í íbúð. Um tíma var Axel með bruggframleiðslu í húsinu, en bruggun öls var oftar en ekki hliðarbúgrein bakara enda um nokkurn veginn sömu hráefni að ræða í þessar framleiðslugreinar. Árið 2022 var húsið endurbyggt að miklu leyti, m.a. nýtt þak og neðri hæð dýpkuð til að fá fulla lofthæð, auk þess sem farið var í nokkrar umhverfisaðgerðir, m.a. byggður aðkomupallur í brekkunni á bakvið. Teikningarnar að þessum framkvæmdum gerði Rögnvaldur Harðarson. Eftir breytingarnar eru fjórar íbúðir í húsinu, tvær á hvorri hæð. Er húsið því í mjög góðri hirðu og í raun sem nýtt. Þegar þetta er ritað standa yfir endurbætur á ytra byrði hússins, veggjum og þaki. Líkt og gengur og gerist með bakhús almennt lætur það lítið yfir sér og ekki ráðandi í götumynd en engu að síður áhugavert og skemmtilegt, einfalt, látlaust og til mikillar prýði. Í Húsakönnun 2012 fær húsið eftirfarandi umsögn: Samstæð hús og heild sem lagt er til að vernda með hverfisvernd í deiliskipulagi (Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, 2012:100).
Meðfylgjandi myndir af Hafnarstræti 23b eru teknar 28. október 2026 og 14. maí 2015. Myndin af Hafnarstræti 23, Schiöthshúsi, er tekin 31. júlí 2010, í fjölmennri sögugöngu undir leiðsögn Gísla Sigurgeirssonar.
Heimildir:
Án. höf. 1959. Axel Schiöth bakarameistari. Í Íslendingi 15. tbl. 45. árg. 24. apríl. Bls. 5.
Brunabótafélag Íslands. 1929. Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1922-1929. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vef safnsins: https://issuu.com/heradsskjalasafnakureyri/docs/f117_3_virdingabok_1922_1929?fr=sMTZmNDQzODI5ODU Hskj.Ak. F-117/3.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 575, 17. okt 1925. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Minjasafnið á Akureyri. Pdf-skjal á slóðinni https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_153.pdf
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Steindór Steindórsson. 1962. Frú Margrete Schiöth. Í Íslendingi 27. tbl. 48. árg. 26. júní, bls. 5.
Erfðafræði birkis
Hvernig er jafnvægið?
Hið næstum heimsfræga hjóltré
Akureyrin í Þorvaldi