Fara í efni
Pistlar

Síðlaufgaður gulvíðir

TRÉ VIKUNNAR - 162

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Nú, þegar vorið hefur bankað á dyrnar og gróður er smám saman að taka við sér, þykir okkur rétt að skoða eina íslenska tegund sem á það til að laufgast mjög seint. Það á þó ekki við um allar plöntur tegundarinnar.

Í pistlum okkar um tré, skóga og tengd málefni höfum við meðal annars sagt frá öllum íslensku víðitegundunum sem hafa verið hér allt frá landnámi og væntanlega miklu, miklu lengur. Ein þeirra heitir gulvíðir eða Salix phylicifolia L. Hér má sjá pistil um þá tegund og því verjum við ekki plássi í að lýsa tegundinni frekar. Okkur þykir þó rétt að nefna að síðlaufgaði gulvíðirinn, sem þessi pistill fjallar um, er að jafnaði lægri vexti en annar gulvíðir en það er ekki algilt.

Einum þætti í þróun tegundarinnar á Íslandi höfum við velt vöngum yfir án þess að fjalla sérstaklega um fyrirbærið í áðurnefndum pistli. Nú viljum bæta úr því og pæla í hvernig á því stendur að til eru gulvíðikvæmi og -klónar sem laufgast svo seint að nær allur annar gróður er löngu farinn að spretta þegar laufin loksins birtast. Þetta fyrirbæri má sjá um allt land en er mest áberandi um sunnanvert og suðvestanvert landið. Víða í uppsveitum Suðurlands er þetta beinlínis algengt. Hvaða vistfræðilegu þættir ýta undir þessa þróun hjá tegundinni? Þetta er lykilspurningin sem við veltum fyrir okkur í þessum pistli.

Nakinn gulvíðir ber í allaufgað lerki í Kjarnaskógi þann 16. júní 2025. Mynd: Sig.A.
 
Nakinn gulvíðir ber í allaufgað lerki í Kjarnaskógi þann 16. júní 2025. Mynd: Sig.A.

Yfirlit

Í þessari grein segjum við fyrst frá kostum og göllum þess fyrir gulvíði að laufgast svona seint. Svo förum við yfir þá þætti sem gætu hafa ýtt undir þessa þróun. Við segjum frá kostum og göllum við tilgáturnar eftir okkar bestu vitneskju. Tilgáturnar tengjast sinumyndun, suðlægum uppruna, aðlögun að ísöld, aðlögun að pöddu- og búfjárbeit og að lokum aðlögun að vorflóðum.

Jarðlægur gulvíðir á hálendi Íslands. Hugsanlega á síðlaufgaður gulvíðir ættir að rekja til gulvíðis á hálendinu. Mynd: Sig.A.
Jarðlægur gulvíðir á hálendi Íslands. Hugsanlega á síðlaufgaður gulvíðir ættir að rekja til gulvíðis á hálendinu. Mynd: Sig.A.

Gallar og kostir

Það er kunnara en frá þurfi að segja að sumarið á Íslandi er heldur í styttra lagi. Þetta stutta sumar þurfa plöntur að nýta sér til vaxtar og viðgangs. Þær þurfa að laufgast, nýta laufin til ljóstillífunar og koma sér upp frostþoli áður en haustar. Þess vegna fylgja því augljósir gallar fyrir tré og runna að laufgast seint. Það styttir þann tíma sem trén hafa til ljóstillífunar og undirbúnings fyrir veturinn. Samt sem áður lítur út fyrir að einhverjir vistfræðilegir þættir ýti undir þveröfuga þróun hjá gulvíði. Því hljóta að fylgja þessu einhverjir kostir. Annars hefði náttúruvalið eytt þessari tilraun náttúrunnar. Þetta á þó hreint ekki við um allan gulvíði. Sumt af honum laufgast alveg jafn snemma og annar gróður. Að auki má velta því fyrir sér hvernig á því standi að aðrar tegundir, sem verið hafa öldum saman á Íslandi, hafa ekki fetað þessa slóð þróunar. Það getur vel verið að á láglendi Íslands séu tveir meginhópar gulvíðis. Annars vegar frekar lágvaxinn gulvíðir sem laufgast seint og hins vegar hærri gulvíðir sem laufgast snemma. Tilviljanir og krosssaumur þróunarinnar hafa svo búið til mismunandi kvæmi um allt land sem byggja á þessum erfðahópum. Það er alveg óvíst að báðir þessir hópar hafi alla tíð verið á láglendi, en þannig er það um þessar mundir. Í þessum pistli veltum við fyrir okkur nokkrum þáttum sem gætu hugsanlega haft eitthvað með þetta að gera. Að okkar mati eru tilgáturnar misjafnlega líklegar og ef til vill geta fleiri en einn þáttur ýtt undir þróunina.

Ólaufgaður gulvíðir í mýrarjaðri að vori. Að baki sér í grænt birki sem er þó ekki þekkt fyrir að laufgast of snemma. Hvað veldur því að hluti gulvíðis laufgast svona seint á vorin? Mynd: Sig.A.
Ólaufgaður gulvíðir í mýrarjaðri að vori. Að baki sér í grænt birki sem er þó ekki þekkt fyrir að laufgast of snemma. Hvað veldur því að hluti gulvíðis laufgast svona seint á vorin? Mynd: Sig.A.

Sina

Stundum laufgast gulvíðir seint þar sem hann vex í mjög sinugefnu landi. Mikil sina getur myndað einangrandi lag sem kemur í veg fyrir að jarðvegurinn hlýni jafn hratt á vorin og minna varin mold. Þannig getur sinan viðhaldið vetrarkulda í jarðvegi og þannig kælt jarðveginn töluvert á vorin. Jarðvegskuldi getur hamlað rótarvexti og þar með seinkað laufgun og vexti á vorin. Því eiga tré sem vaxa í mikilli sinu það til að laufgast fremur seint en það er ekki bundið við gulvíði. Smám saman breytist svona land þegar tvíkímblöðungar ná að nema það. Þá dregur úr þessari einangrandi sinulagi.

Svona sinugefið land telst vart til upprunalegs gróðurfars nema að litlu leyti. Þetta telst vera beitarlandslag sem komið er til vegna stífrar beitar í langan tíma. Það hefur orðið til þess að blómplöntur úr hópi tvíkímblöðunga hafa horfið því almennt þola þær verr beitina en einkímblöðungar. Ef og þegar dregur úr beit mynda einkímblöðungar, sem fyrst og fremst eru ýmsar grastegundir, mikla sinu. Þar með er jarðvegurinn lengi að hitna á vorin. Svona landslag hefur varla orðið til fyrr en eftir að landið byggðist. Þar sem þessi vist er tiltölulega ný á Íslandi er ólíklegt að það hafi nokkuð með erfðir að gera að víðir laufgast seint í slíku landi þótt kaldur jarðvegur geti vel seinkað laufgun. Sinutilgátan getur því útskýrt af hverju sumar víðiplöntur (og reyndar annar gróður) laufgast seint en varla af hverju sumar gulvíðiplöntur hafa erfðir sem stuðla að seinkaðri laufgun. Sina veldur ekki erfðabreytingum. Þess vegna teljum við ólíklegt að hún geti verið liður í þrýstingi sem leiðir til tiltekinnar þróunar.

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Meira á vef Skógræktarfélagsins. Smellið hér til að sjá allan pistilinn.

Geðheilsuefling Andrésar andar

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
29. apríl 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Gránufélagsgata 18

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
26. apríl 2026 | kl. 14:00

Súrmatur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
26. apríl 2026 | kl. 11:30

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00