Fara í efni
Pistlar

Samhygð

Fyrir tæpum aldarfjórðungi eignaðist ég son. Hann var með alvarlegan hjartagalla og þurfti að fara erlendis í aðgerð. Allt gekk upp og í dag er hann hraustur og heilbrigður, þökk sé afburða heilbrigðisstarfsfólki. Talsverður kostnaður féll á mig vegna þessa, ég var ekki illa stæður en heldur ekki efnaður svo að þetta var dálítill skellur. Velviljað fólk efndi til samskota og safnaði peningum sem að komu sér afar vel. Ég var þessu fólki mjög þakklátur en samt voru tilfinningar mínar blendnar. Stoltið var sært.

Það hafa ekki allir efni á að senda börnin sín í íþróttir. Þegar ég starfaði sem þjálfari á Akureyri, bauð ég í gegnum félagsþjónustu og presta hér á Akureyri börnum skjólstæðinga þessara aðila að æfa júdó frítt. Enginn þáði það boð, samt vissi ég um mörg börn sem langaði til að koma. Ástæðan var sú að foreldrarnir áttu erfitt með að senda barnið sitt á þessum forsendum, að fá eitthvað frítt vegna aðstæðna sinna.

Einu sinni sá ég kunningjakonu mína á Facebook skrifa í angist sinni að hún hefði ekki efni á insulin sem að hún þarf nauðsynlega. Fólk fór strax að safna handa henni peningum fyrir lyfinu, það tók nokkrar mínútur. Hún var þakklát en beygð yfir því að þurfa að fara þessa leið til að lifa.

Við viljum langflest hjálpa hvort öðru, þrátt fyrir allt er samhyggð okkur eiginleg. En það er erfitt að þiggja. Þess vegna borgum við skatta með glöðu geði svo að það sé séð um þá sem eiga erfitt, þannig að það fólk geti haldið reisn sinni í erfiðleikum. Sjálf getum við lent í sömu sporum, ég þekki það vel. Það er auðveldara að þiggja úr sjóðum sem að maður hefur sjálfur borgað í.

En svo er það litli minnihlutinn sem að virðist ekki búa yfir þessari samhygð. Af hverju fær hann að ráða?

Jón Óðinn er leiðbeinandi barna með hegðunarvandamál og fyrrverandi júdóþjálfari.

Orkuveita heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
23. ágúst 2025 | kl. 11:45

Þessi þjóð er óð í gróða

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
23. ágúst 2025 | kl. 06:00

Og Ian Rush verður að skora!

Orri Páll Ormarsson skrifar
22. ágúst 2025 | kl. 09:00

Bergfuran við Aðalstræti 44

Sigurður Arnarson skrifar
20. ágúst 2025 | kl. 23:00

Eyrarland, gamla íbúðarhúsið

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
19. ágúst 2025 | kl. 10:00

Strandir

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
18. ágúst 2025 | kl. 11:30