Fara í efni
Pistlar

Lífið í búningsklefanum

LEIKHÚS

Freyvangsleikhúsið – Útsynningur


Það var spenna í loftinu og troðfullt bílaplan í Freyvangi þegar ég mætti ásamt samferðafólki mínu, þrjár mínútur í átta. Ekki er á hverjum degi sem heimsfrumsýning er í boði og eftirvæntingin leyndi sér ekki í fullum salnum.

Í leikskránni rakst ég á skemmtilega hugmynd: leikskrá í leikskrá. Þar var sérstök leikskrá fyrir Cloud Nine eftir Caryl Churchill, verkið sem leikhópurinn í Útsynningi er að setja á svið. Við sjáum hins vegar ekki þá sýningu heldur fylgjumst með lífinu í búningsklefanum. Þar gerist ýmislegt meðan leikararnir bíða eftir að fara inn á svið eða koma þaðan aftur, og ekki er allt jafn ilmandi.

Útsynningur er nýtt leikverk eftir Hjálmar Arinbjarnarson í leikstjórn Jóhönnu S. Ingólfsdóttur. Það er ánægjulegt að Freyvangsleikhúsið skuli ráðast í uppsetningu á frumsömdu verki og grunnhugmyndin býður upp á ýmsa möguleika. Búningsklefi áhugaleikfélags er ágætis suðupottur fyrir ólíkar manngerðir, metnað, vináttu og skoðanir fólks á eigin ágæti. Þeir sem þekkja leikhúsið geta hæglega kannast við eitthvað af því sem þar fer fram.

Sýningin fór af stað með krafti og persónugalleríið gaf fljótt tilefni til kímni. Leikararnir leika hér leikara sem hafa ólíka sýn á lífið, stöðu sína og samferðafólkið. Úr þessu urðu skemmtileg samskipti og á köflum verulega fyndin augnablik.

Það tók mig þó tíma að finna mig í sýningunni. Leikstíllinn var ósamræmdur: hjá einum var krafturinn mikill og leikurinn ýktur, annar nálgaðist aðstæðurnar með hversdagslegri og raunsærri leik og sá þriðji fór nær sápuóperunni. Hver þessara leiða getur virkað, en hér náðu þær ekki nægilega vel saman. Ólíkar persónur þurfa ekki að vera leiknar á sama hátt, en þær þurfa að tilheyra sama leikhúsheimi. Einkum í upphafi skorti þann sameiginlega grunn og taktur samskiptanna varð ójafn.

Stærsti fyrirvarinn minn snýr þó að lengdinni. Sýningin hefði að mínu mati haft verulegan ávinning af styttingu. Uppákomur og brandarar endurtóku sig of oft og í stað þess að auka kraftinn fór endurtekningin að draga úr honum. Prumpu- og táfýlubrandarar eiga auðvitað sinn stað í þessum búningsklefa, en þeir fengu meira rými en þeir báru. Ég hefði gjarnan viljað fá meira af samskiptunum sem vöktu áhuga og minna af því sem þegar hafði skilað sínu.

Persónufjöldinn vakti líka spurningar um hvort þéttari hópur hefði gefið meira svigrúm til að þróa þau sambönd sem mestu skiptu. Það er nóg af hugmyndum hér, en þær hefðu notið sín betur í hnitmiðaðri sýningu.

Allir leikararnir náðu á einhverjum tímapunkti að vekja hlátur í salnum. Tvo leikara langar mig þó sérstaklega að nefna: Níels Kristin Ómarsson í hlutverki Tedda og Tinnu Evudóttur sem leikur Sóleyju. Þau náðu góðu flugi, voru trú persónum sínum og sátu vel í hlutverkunum. Í leik þeirra fann ég þá festu sem gerði mér auðveldara að trúa fólkinu í búningsklefanum og njóta þess sem þar fór fram.

Já, og svo er það hann Geirmundur húsvörður. Ýmislegt í kringum hann var býsna skemmtilegt, en um það ætla ég að segja sem minnst svo ég spilli ekki fyrir væntanlegum gestum.

Útsynningur á sín góðu augnablik og kunnuglegt baksviðslífið gefur tilefni til bæði hláturs og sjálfsskoðunar. Fyrir mér náði sýningin þó ekki að halda sama krafti út í gegn. Lengdin, endurtekningarnar og ósamræmið í leikstíl komu niður á heildinni, þótt skemmtileg grunnhugmynd og góður leikur á köflum væru henni til styrktar.

Viðbrögðin í salnum bentu þó til þess að margir áhorfendur skemmtu sér konunglega. Þótt fyrirvarar mínir við sýninguna séu þessir, er ljóst að margt í henni náði vel til annarra.

Hjálmar og Freyvangsleikhúsið eiga hrós skilið fyrir að koma nýju íslensku leikverki á svið. Það er framtak sem ber að fagna.

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Ljósi varpað á leyndardóma heilans

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:00

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
06. október 2026 | kl. 06:00