Fara í efni
Pistlar

Kraftur og leikgleði í „Ljóska í gegn“

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir þessa dagana söngleikinn Ljóska í gegn, verk sem margir mun líklega eftir sem Legally blonde; bók og bíómynd, og svo söngleiknum Legally blonde: The musical.

„LMA hefur sýnt það undanfarin ár, að það er algjörlega óþarfi að leita út fyrir veggi Menntaskólans eftir fagmennsku þegar kemur að leikhúsinu. Nemendur skólans eru hæfileikabúnt, hvert með sína styrkleika og leikfélaginu hefur tekist með eindæmum vel að virkja þessa hæfileika og koma saman í glæsilegum leiksýningum. 120 nemendur koma að sýningunni í ár, sem er alveg magnað,“ segir Rakel Hinriksdóttir m.a. í pistli sem hún skrifar um sýninguna.

„Leikararnir eru öruggir og flottir, en það var aðdáunarvert að sjá þau fara með flóknar rullur sem eru textaþungar, á meðan þau brustu í söng og dans með mjög stuttu millibili í ofanálag,“ skrifar Rakel.

Pistill Rakelar:  Öskubuska, Elle Woods og Sandy í Grease

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00

Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun

Sigurður Arnarson skrifar
20. maí 2026 | kl. 09:00

Líkaminn geymir meira en við höldum

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
19. maí 2026 | kl. 09:00

Slakaðu á maður, þetta er bara Fúsi!

Orri Páll Ormarsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 06:00

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30