Fara í efni
Pistlar

KAON fær 600 krónur af hverri MA-pitsu

Sneið fyrir samfélagið! Frá vinstri, Aron Þór Sigurgeirsson, rekstrarstjóri Sprettsins.MA-ingarnir Tinna Kristinsdóttir, Erika Rakel Melsen, Baltasar Guðmundsson og Ármann Snær Heimisson, og Arirnbjörn Þórarinsson framkvæmdastjóri Greifans.

Samfélagsverkefni undir yfirskriftinni Sneið fyrir samfélagið er hrundið af stað í dag. Þar taka höndum saman veitingastaðurinn Spretturinn í Kaupangi, Huginn - skólafélag Menntaskólans á Akureyri, og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON). 

  • Verkefnið felst í því að nemendur MA hafa hannað þrjár pitsur sem seldar verða á Sprettinum og 600 krónur af hverri seldri pitsu renna til Krabbameinsfélagsfélags Akureyrar og nágrennis.

„Upphaflega var markmiðið að þróa pizzur sem höfða til ungs fólks. Fulltrúar MA komu að þróuninni frá grunni og niðurstaðan varð nýr pönnupizzubotn og þrjár spennandi pizzur sem nú eru komnar á matseðil,“ segir í tilkynningu um verkefnið. Þar kemur fram að seinna í ferlinu hafi kviknað sú hugmynd að láta verkefnið einnig leiða til góðs – og varð það grunnurinn að „Sneið fyrir samfélagið“.

Umræddar þrjár pítsur bera nöfnin Businn, Kvos-inn og Skólameistarinn og endurspegla bæði sköpunargleði nemenda og tengingu við skóla- og bæjarlíf,“ segir í tilkynningunni.

„Við vildum skapa eitthvað sem tengir saman nemendur og samfélagið á einfaldan og skemmtilegan hátt. Hugmyndin er sú að hver pizza gefi til baka – ein sneið í einu,“ segir Aron Þór Sigurgeirsson, rekstrarstjóri Sprettsins.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að taka þátt í verkefnum sem byggja á samstöðu og þátttöku. Hér fá nemendur tækifæri til að skapa eitthvað sem hefur raunveruleg áhrif,“ segir Tinna Kristinsdóttir, fyrir hönd Skólafélagsins Hugins.

Verkefnið Sneið fyrir samfélagið hefst í dag, 18. mars, og stendur allt til 15. apríl, „og verða reglulega birtar upplýsingar um framvindu verkefnisins,“ segir í tilkynningunni.

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00

Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun

Sigurður Arnarson skrifar
20. maí 2026 | kl. 09:00

Líkaminn geymir meira en við höldum

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
19. maí 2026 | kl. 09:00

Slakaðu á maður, þetta er bara Fúsi!

Orri Páll Ormarsson skrifar
15. maí 2026 | kl. 06:00

Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni

Sigurður Arnarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 09:30