Fara í efni
Pistlar

KAON fékk hálfa milljón úr „sneiðinni“

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) fékk á dögunum afhenta rúmlega hálfa milljón króna eftir að samfélagsverkefninu „Sneið fyrir samfélagið“ lauk.

Veitingastaðurinn Spretturinn í Kaupangi, Huginn - skólafélag Menntaskólans á Akureyri (MA), og KAON tóku höndum saman og verkefnið fólst í því að nemendur MA hönnuðu þrjár pitsur sem seldar voru á Sprettinum og 600 krónur af hverri seldri pitsu runnu til KAON. Þegar upp var staðið höfðu selst alls 839 MA-pitsur og KAON fékk því 503.400 krónur.

Á myndinni eru þrír nemendur MA og rekstrarstjóri Sprettsins ásamt fulltrúum Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON) við afhendingu styrksins. Frá vinstri: Eva Björg Óskarsdóttir frá KAON, Ómar Hrafn Pétursson úr MA, Steingrímur Karlsson, KAON, Torfhildur Elva Friðbjargar Tryggvadóttir, MA, Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, KAON, Tinna Kristinsdóttir, MA og Aron Þór Sigurgeirsson, rekstrarstjóri Sprettsins.

Upphaflega var markmiðið að þróa pitsur sem höfða til ungs fólks. MA-ingarnir komu að þróuninni frá grunni og niðurstaðan varð nýr pönnupitsubotn og þrjár spennandi pitsur sem settar voru á matseðil Sprettsins. Seinna í ferlinu kviknaði sú hugmynd að láta verkefnið einnig leiða til góðs – og varð það grunnurinn að „Sneið fyrir samfélagið“, að því er segir í tilkynningu.

Pitsurnar þrjár voru kallaðar nöfnin Businn, Kvos-inn og Skólameistarinn.

„Við erum ótrúlega ánægð með viðtökurnar sem verkefnið fékk. Það var greinilegt að fólk vildi bæði prófa nýju pizzurnar og taka þátt í góðu málefni,“ segir Aron Þór Sigurgeirsson, rekstrarstjóri Sprettsins og Tinna Kristinsdóttir frá skólafélaginu Hugin er ekki síður ánægð: „Það var mjög gaman að sjá nemendur taka þátt í verkefni sem varð að raunverulegu samfélagsátaki. Við erum afar stolt af útkomunni og stuðningnum sem verkefnið fékk,“ segir Tinna.

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30