Fara í efni
Pistlar

Sendibréf frá 19. öld fannst í bókarkápu

Hluti bréfsins sem fannst í bókinni í MA. Mynd: ma.is.

Í gamalli bók í geymslu Menntaskólans á Akureyri (MA) fannst nýlega hluti af enn eldri sendibréfum. Að því er fram kemur í frétt á vefsíðu MA er erfitt að rýna í texta bréfsins en að öllum líkindum er það undirritað af séra Jóni Konráðssyni, presti á Mælifelli.

Líklegt er að bréfin hafi verið endurnýtt við bókband á sínum tíma, en slíkt var algengt á fyrri öldum þegar pappír þótti verðmætur og var nýttur til hins ýtrasta. Bréfin virðast hafa verið límd saman í nokkur lög til að styrkja bókarkjölinn. Þótt erfitt sé að lesa textann í heild má greina nafn prests í Skagafirði á einu bréfanna. Við samanburð við þekktar undirskriftir hefur komið í ljós að líklega er um að ræða undirskrift séra Jóns Konráðssonar á Mælifelli. Á bréfinu má greina áritunina „Herra prófasti J. Konráðs syni Mælifelli.“

Jón Konráðsson fæddist árið 1772 og var stúdent frá Hólaskóla. Hann fékk Möðruvallaklaustursprestakall árið 1810 og sama ár varð hann prestur á Mælifelli. Jón var þekktur fyrir skrif og þjóðlegan fróðleik en hann lést árið 1850.

Fundurinn tengist einnig öðrum þekktum persónum úr íslenskri menningarsögu. Jón Konráðsson fermdi meðal annars sagnaritarann Gísla Konráðsson árið 1799. Þá skírði hann son hans árið 1808 í skemmu á Langamýri í Skagafirði. Drengurinn hlaut nafnið Konráð og varð síðar þekktur sem einn af Fjölnismönnum.

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað - Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30

Mannúðarlánastefna og biksvartur húmor

Rakel Hinriksdóttir skrifar
28. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30