Fara í efni
Pistlar

Kaflaskipt hjá KA/Þór gegn Haukum

Susanne Denise Pettersen (nr. 14) reynir hér að verjast Haukastúlkunni Ingu Dís Jóhannsdóttur. Mynd: mbl.is/Egill Bjarni Friðjónsson.

KA/Þór tók á móti Haukum í efstu deild kvenna í handknattleik í gærkvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik hrökk allt í baklás hjá KA/Þór í upphafi þess seinni og Haukar unnu stórsigur, 31:20.

Leikurinn var mikilvægur fyrir heimaliðið, sem hefði með sigri átt góðar vonir um að geta þokað sér upp töfluna og nælt sér í heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Þær vonir dvínuðu mikið við þetta tap en Haukar halda sínu striki í 3. sætinu.

Fyrri hálfleikur var tiltölulega jafn, KA/Þór var yfir til að byrja með en í stöðunni 3:2 KA/Þór í hag skoruðu Haukar 6 mörk í röð og sneru leiknum sér í vil. Heimastúlkur náðu þó að saxa aðeins á forskot gestanna og í leikhléi munaði tveimur mörkum, 15:13 Haukum í vil.

Tíu Haukamörk gegn einu

KA/Þór minnkaði muninn í 15:14 í upphafi seinni hálfleiks en þá tók við tíu mínútna kafli þar sem liðið náði aðeins að skora eitt mark á meðan Haukar skoruðu tíu. Staðan orðin 25:15 og úrslitin ráðin. Þessi munur hélst nokkurn veginn óbreyttur til leiksloka og lokatölur 31:20 gestunum í vil.

Næstu leikir liðanna í deildinni verða ekki fyrr en 14. mars en bæði KA/Þór og Haukar taka þátt í bikarúrslitahelginni sem hefst með undanúrslitaleikjum næstkomandi miðvikudag.

Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Trude Blestrud Hakonsen 4, Lydía Gunnþórsdóttir 4 (4 víti), Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 2, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 7, Ástrós Anna Bender 2 (1 víti).

Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 9 (3 víti), Rakel Oddný Guðmundsdóttir 5, Inga Dís Jóhannsdóttir 5, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 3, Sara Marie Odden 3, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Birta Lind Jóhannsdóttir 1, Embla Steindórsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 8, Erla Rut Viktorsdóttir 1.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild kvenna í handknattleik

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00