Heimaleikir kvennaliða í fótbolta og körfubolta
Tvö Akureyrarlið eiga heimaleiki í dag, Þór/KA í Lengjubikar kenna í knattspyrnu í Boganum kl. 17 og kvennalið Þórs í körfubolta í Íþróttahöllinni kl. 18. Þrjú lið spila fyrir sunnan, karlalið KA sækir Njarðvíkinga heim í Lengjubikar karla í knattspyrnu, Þórsarar fara á Selfoss og spila í Olísdeild karla í handbolta og kvennalið SA í íshokkí mætir Fjölni í seinni leik sínum í Ofurhelgi Íshokkísambandsins.
Fylgir KA eftir sigrinum á Íslandsmeisturunum?
Karlalið KA í knattspyrnu sækir Njarðvíkinga heim í fjórða leik sínum í riðli 3 í A-deild Lengjubikars karla. KA tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum, en vann þann þriðja, gegn Íslandsmeisturum Víkings, og er því með þrjú stig þegar liðið á tvo leiki eftir í riðlinum.
- A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu, riðill 3
Nettóhöllin í Keflavík, gervigras, kl. 15
Njarðvík - KA
Ná Þórsarar að klifra upp töfluna?
Þórsarar náðu ekki færa sig upp töfluna þegar þeir mættu HK á útivelli í 18. umferð Olísdeildar karla, liði sem var stigi fyrir ofan Þór, og sitja því áfram í 11. og næstneðsta sætinu með níu stig.
Í dag er komið að enn einum mikilvægum leik liðsins í baráttunni þegar Þórsarar sækja Selfyssinga heim, lið sem er á svipuðum slóðum og þeir. Selfoss er í 9. sæti deildarinnar með 11 stig, en Stjarnan er þarna á milli með tíu stig. Einn til tveir sigrar á lokakaflanum geta því skipt sköpum um endanlega röð liðanna, en nú eru fjórar umferðir eftir af deildinni.
- Olísdeild karla í handbolta
Set-höllin á Selfossi kl. 16
Selfoss - Þór
Fyrri viðureign þessara liða endaði með 31-28 sigri Þórsara og er það einn af þremur sigrum liðsins í vetur.
Seinni Ofurhelgarleikur SA
Annar leikur kvennaliðs SA í íshokkí um helgina verður í Egilshöllinni í dag þegar þær sækja lið Fjölnis heim í Toppdeildinni. SA hefur unnið alla leiki sína gegn Fjölni í vetur, flesta með nokkrum yfirburðum, en einn þó í framlengingu.
- Toppdeild kvenna í íshokkí, Ofurhelgi
Egilshöll kl. 16:45
Fjölnir - SA
Nær Þór/KA fyrsta sigurleiknum?
Þór/KA leikur fyrri heimaleik sinn í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í dag þegar sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur, nýliðar í Bestu deildinni, mætir í Bogann. Þór/KA hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum.
- A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu, riðill 1
Boginn kl. 17
Þór/KA - Grindavík/Njarðvík
Segja má að um sögulega viðureign sé að ræða því þetta er í fyrsta skipti sem þessi lið mætast þar sem Grindavík og Njarðvík hafa aðeins verið í samstarfi í eitt tímabil.
Toppbaráttan í algleymingi
Kvennalið Þórs í körfubolta missti af toppsæti 1. deildarinnar í þarsíðustu umferð þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Aþenu. Þrátt fyrir annað tapið í röð þegar liðið sótti Fjölni heim á sunnudag er Þór þó enn í 2. sætinu, en Fjölnir er í 3. sætinu með aðeins einum sigri minna. Þór á þó betri árangur í innbyrðis viðureignum við Fjölni.
Þórsarar taka á móti liði ÍR í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld kl. 18.
- 1. deild kvenna í körfubolta
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18
Þór - ÍR
Ef marka má úrslit í fyrri viðureigninni við ÍR verður að teljast ólíklegt að þriðji ósigurinn í röð verði að veruleika. Þór vann fyrri leik liðanna sem fram fór í Breiðholtinu í nóvember með 57 stiga mun, 122-65.
Steinhættu að halda með Liverpool
Olga örmagnast
Furðutré innan gagnviðarættar
Hús dagsins: Grundargata 5