Fara í efni
Pistlar

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

FERÐAFÉLAG AKUREYRAR 90 ÁRA


Hér birtist á ný upprifjun í tilefni af 90 ára afmæli FFA, og við höldum okkur áfram á Glerárdal, í hjarta Tröllaskagans. Árið 1976 birtist í Ferðum, blaði Ferðafélags Akureyrar, grein um byggingu gamla Lamba, skála FFA á Glerárdal en hann hafði verið fluttur á staðinn árið áður. Jón Dalmann Ármannsson, ritaði greinina og kallast hún Lambi, sæluhús FFA á Glerárdal. Eins og sjá má af efni greinarinnar var skálinn byggður af heldur minni efnum en sá skáli sem nú ber sama nafn og sem leysti þann gamla af hólmi vorið 2014.

 

Tucker snjóbíll Baldurs Sigurðssonar (Snjókötturinn) dregur Lamba á Glerárdal vorið 1975. Mynd Sigurgeir B. Þórðarson.

Gamli skálinn veitti mörgum skjól og dugði vel í 39 ár. Hann var mörgum gott ferðamarkmið þegar gengið var eða ekið inn á Glerárdal. Enn mun gamli Lambi vera til en sagan segir að hann hafi fengið framhaldslíf sem hænsnakofi fram í Eyjafjarðarsveit!

Sem betur hefur okkur tekist að bæta umgengnina á Glerárdal því að ekki er lengur urðað sorp þar. Meira að segja var stundum kveikt í sorphaugunum þannig að stækjuna lagði um allt! Enda segir í greininni: „Hæfilegt tel ég að ætla fast að 4 klst. í ferðina, enda standi vindur þá ekki af öskuhaugunum, þannig að ekki þurfi að sveigja hátt til hlíða þess vegna“. Nú er kominn stígur inn Glerárdal sem náði langleiðina inn að Lamba síðastliðið haust og er hann t.d. orðin vinsæl hjólaleið.

Hér að neðan er grein Jóns Dalmanns Ármannssonar.

Ferðafélagsfólk í vélsleðaferð nýtur veðursins við Lamba vorið 2008. Mynd Hjalti Jóhannesson.

Lambi, sæluhús FFA á Glerárdal

Það var fyrir nokkrum árum, að fyrst var hreyft þeirri hugmynd, að félagið byggði lítið sæluhús, sem einkum væri ætlað fyrir gönguferðir. Í fyrstu var gert ráð fyrir að um færanlegan skála yrði að ræða, sem flytja mætti t. d. árlega, eða annað hvert ár, og yrði gönguferðum beint að umhverfi skálans hverju sinni. Þegar farið var að ræða um hvar slíkt sæluhús yrði sett niður í fyrstu, komu ýmsir staðir til greina. En á aðalfundi F.F.A. 1972 flutti Tryggvi Þorsteinsson tillögu um að stjórninni yrði falið að athuga um gerð á færanlegum skála, er nægði til gistingar fyrir 7 - 10 manns, og yrði hann fyrst settur niður innarlega á Glerárdal. Hugmynd þessi hlaut nú vaxandi athygli, og varð þá fljótt ljóst, að yrði húsið sett niður innarlega á Glerárdal, yrði það sennilega til frambúðar.

Mokað frá vorið 2008. Mynd Hjalti Jóhannesson

Skrið komst þó ekki á framkvæmdir fyrr en haustið 1974, að Aðalsteinn Valdimarsson, sem þá hafði tekið sæti í ferðanefnd, bauð félaginu til kaups lítinn skúr, sem hann og félagar hans áttu út við Skjaldarvík, og höfðu notað sem verbúð. Stjórn félagsins tók boði Aðalsteins með þökkum, enda verðið ekki hátt. Laugardaginn 8. febrúar var síðan lagt af stað með skúrinn, sem var á tveim góðum meiðum, og var hann fyrst dreginn af jarðýtu, en því næst fluttur á bíl upp á svæði Vegagerðarinnar, en þar fékkst leyfi til að hafa hann meðan gerðar voru á honum endurbætur. Voru þá settar í hann 6 hvílur, olíuvél til hitunar og eldunar, o. fl. Þrír menn úr skálanefnd sáu um þessar framkvæmdir, þeir Aðalgeir Pálsson, Árni Jóhannesson og Örn Indriðason, en hann sá um smíðavinnu.

Innanstokks í gamla Lamda árið 2008. Mynd Hjalti Jóhannesson.

Nú var eftir að velja stað fyrir skálann og koma honum þangað. Vorum við Aðalsteinn valdir til þess verks, ásamt Gunnari Helgasyni, sem sýnt hafði þessu máli mikinn áhuga og boðið fram aðstoð sína, sem reyndist drjúg. Einnig fékk hann til aðstoðar nokkra félaga sína úr Hjálparsveit skáta með vélsleða. Leitað var til Baldurs Sigurðssonar um flutning skálans fram á Glerárdal. Var ráðgert að draga hann á snjóbíl hans. Fyrst var farin könnunarferð á snjóbíl Bangsa. Var ekið skáhalt upp á Súlumýrar, síðan inn þær og inn með fjallgarðinum í svipaðri hæð frá Súlum og inn í Lambárdal, og farið yfir Lambána austur af enda Lambárdalsaxlar, en þar reyndist gilið grunnt, og nær fullt af snjó. Húsinu var nú valinn staður á melhjalla undir Lambárdalsöxl innarlega. En hjalli þessi gengur fram undir Glerána, og innan hans tekur við flatur botn Glerárdalsins, og réð útsýn inn yfir botninn og fjallahringinn, sem umlykur hann staðarvali. En á næsta mel fyrir neðan sér hins vegar niður allan dal og allt til sjávar.

Yfirsýn niður til Hraundranga og fjallanna þar í kring séð frá Landafjalli, eftir að hafa skotist þangað á vélsleða frá Lamba vorið 2008. Sjónarhornið er til marks um hæð fjalla Tröllaskagans umhverfis Glerárdal. Mynd Hjalti Jóhannesson.

Laugardaginn 22. mars 1975 var síðan lagt af stað með húsið aftan í Snjóketti Baldurs sömu leið og farin var í könnunarleiðangrinum. Tókst sú ferð sérlega vel, og mun ekki hafa tekið nema um 2 ½ tíma. Voru nær 20 vélsleðar með í ferð þegar mest var. Nú var hins vegar eftir að festa húsið tryggilega, en til þess höfðu verið smíðuð 4 nokkurs konar ankeri, sem grafa skyldi í jörðu og festa með keðjum í hvert horn hússins. Reyndist þetta seinlegt verk, og nutum við hér Baldurs, sem hafði með sér sprengiefni og mottu. Ennfremur höfðum við fengið lánaðan bensínknúinn bor. Er ekki að orðlengja það, að komið var myrkur og byrjað að snjóa, og allt sprengiefni þrotið, þegar loks hafði verið gengið tryggilega frá festingum. Í sumar var síðan gerð ferð til þess að ganga betur frá festingum hússins og rétta það af. í þeirri ferð var hleðslustjóri félagsins Sigurður Hjálmarsson, og sá hann um hleðslu á stórri vörðu á melnum neðan skálans, þar sem sér niður dalinn, og vísar hún því veginn að sæluhúsinu.

Tucker snjóbíll Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri dregur gamla Lamba aftur til byggða vorið 2016. Nýi Lambi sést í bakgrunni. Mynd Hjalti Jóhannesson.

Það má segja að notkun hússins til þessa sé fyllilega eftir vonum, og hefir verið gist þar margar helgar s.l. vor og í vetur. Eins og fyrr segir eru í húsinu 6 hvílur með svampdýnum og ullarteppum. En hægt mun vera fyrir 8 - 10 manns að gista þar ef á liggur. Nauðsynlegustu áhöld til eldunar eru þar. Ýmsa smáhluti vantar þó e.t.v. enn, og einnig á eftir að gera smá lagfæringar á kyndingu og húsinu sjálfu. Nauðsynlegt er að láta vita, ef fólk hugsar til gistingar í húsinu, svo að ekki þurfi að snúa frá, sé húsið fullsetið. Vonandi verður fyrr en seinna hægt að birta í Ferðum sérstaka lýsingu á Glerárdal og helstu gönguleiðum í sambandi við húsið. Í sumar eru á áætlun nokkrar gönguferðir á þessar slóðir, t.d. á Kerlingu, Tröllafjall, Bónda, yfir í Skjóldal, Bægisárdal og víðar. Ef farið er á bíl það sem vegur endist, áleiðis á dalinn, tel ég vera rösklega gengið að komast á 3 klst. inn í sæluhúsið. Hæfilegt tel ég að ætla fast að 4 klst. í ferðina, enda standi vindur þá ekki af öskuhaugunum, þannig að ekki þurfi að sveigja hátt til hlíða þess vegna. Best mun að halda sig nokkuð frá Gleránni og gott að rölta kindagötur inn með brekkum, þar til taka má mið af vörðunni Sigurðar.

Hjólað að endanum á stígnum inn á Glerárdal í september 2025. Mynd Hjalti Jóhannesson.

En gæta skal sín við Lambána sé hún í vexti. Gæti hún jafnvel orðið illfær, ef hún er í virkilegum ham og er þá helst að leita upp með henni, þangað sem hægt væri að stikla hana, eða nota snjóbrú. Þá er þess að geta, að þótt ekki sé lengra frá byggð, geta veður orðið hörð á þessum slóðum, einkum um hávetur, og skyldu því allir haga ferðum sínum og útbúnaði með tilliti til þess. Auðvitað má einnig velja sér leið vestan Glerár, og vaða síðan ána á móts við sæluhúsið, og mun það oftast fært. Þess má að lokum geta að áhugi er ríkjandi um byggingu fleiri skála fyrir göngufólk, og hefir stjórn félagsins þegar fengið heimild til framkvæmda, þegar efni standa til.

Jón Dalmann Ármannsson.

Hjalti Jóhannesson er í ritnefnd Ferða og í afmælisnefnd vegna 90 ára afmælis Ferðafélags Akureyrar.

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brynhildur fer aftur á bráðamóttökuna

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 09:30