Fara í efni
Pistlar

Atli með 4 mörk í fyrri hálfleik í stórsigri Þórs

Atli Sigurjónsson í þann mund að skora í gærkvöldi. Hann gerði fjögur mörk í leiknum, öll í fyrri hálfleik. Ágúst Eðvald Hlynsson fyrir miðri mynd. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar burstuðu vængbrotið lið Völsungs í Lengjubikarkeppni KSÍ í Boganum í gærkvöldi. Leikurinn endaði 10:0 eftir að Þórsarar höfðu gert átta mörk í fyrri hálfleik.

Atli Sigurjónsson gerði fyrsta markið strax á 3. mínútu og hann gerði einnig síðasta mark fyrri hálfleiks á lokamínútunni; gerði þá fjórða mark sitt í leiknum og breytti stöðunni í 8:0.

Ingimar Arnar Kristjánsson gerði þrjú mörk í leiknum og þeir Ragnar Óli Ragnarsson, Kristófer Kató Friðriksson og Atli Þór Sindrason eitt hver. 

Þór hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli og er því með sjö stig. Þetta var fyrsti leikur Völsungs.
 
Næsti leikur Þórs er á útivelli gegn Aftureldingu á miðvikudag í næstu viku. 
 

Leikskýrslan

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00