Fara í efni
Pistlar

Handbolti: Mikilvægur heimaleikur hjá KA/Þór

KA/Þór tekur á móti Haukum í Olísdeild kvenna í kvöld. Myndin er af Facebook-síðu KA.

Kvennalið Akureyrar í handboltanum, KA/Þór, tekur á móti liði Hauka í mikilvægum leik í Olísdeild kvenna í kvöld kl. 19. 

KA/Þór tryggði sér endanlega sæti í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta með sigri á Selfyssingum í 17. umferðinni. Liðið er nú í 6. sæti deildarinnar með 15 stig og getur með góðum endaspretti klifrað eitthvað upp töfluna því næstu lið fyrir ofan, Fram, ÍR og Haukar, eru með 17, 18 og 19 stig.

Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni áður en úrslitakeppnin hefst og nánast öruggt að þessi fjögur lið endi í 3.-6. sæti nema eitthvað mikið gerist. Valur og ÍBV eru langefst í deildinni og ólíklegt að þau lið tapi öllum leikjum sem eftir eru. Fram undan er því barátta um röðun liðanna sem spila í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Sex efstu liðin leika í úrslitakeppninni og sitja liðin í 1. og 2. sæti hjá í fyrstu umferðinni. Liðið í 3. sæti mætir þá liðinu í 6. sæti og svo liðin í 4. og 5. sæti. Endanleg röð í deildinni skiptir því máli upp á mótherja og oddaleiksréttinn í úrslitakeppninni.

Haukar eru í 3. sæti deildarinnar með 19 stig, fjórum stigum meira en KA/Þór.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    KA-heimilið kl. 19
    KA/Þór - Haukar

Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur og höfðu Haukar sigur í bæði skiptin, 27-23 á Akureyri í október og 35-20 í Hafnarfirði í desember.

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00