Fara í efni
Pistlar

Aldís Ásta leikur með KA/Þór næsta vetur

Mynd sem birtist á heimasíðu KA.

Handboltakonan Aldís Ásta Heimisdóttir er á heimleið eftir nokkur ár í Svíþjóð og hyggst leika með KA/Þór á ný næsta vetur. Aldís á von á fyrsta barni sínu í vor „en hún er staðráðin í að koma sterk til baka á völlinn og ljóst að það verður gríðarlega sterkt að fá hana aftur heim,“ segir í tilkynningu á heimasíðu KA.

Aldís Ásta hefur verið í lykilhlutverki með liði Skara HF og varð Svíþjóðarmeistari í fyrravor. Hún er 26 ára, uppalin hjá KA/Þór og hóf ung að leika með meistaraflokki. Á vef KA kemur fram að Aldís átti 170 keppnisleiki að baki fyrir KA/Þór áður en hún hélt til Svíþjóðar. Hún varð Íslands- og bikarmeistari með KA/Þór 2021, auk þess deildarmeistari og liðið varð einnig Meistari meistaranna. Aldís á að baki nokkra leiki með A-landsliðinu og fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands, að því er segir á vef KA; hún lék t.d. með landsliði 20 ára og yngri á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi sumarið 2018.

  • Viðtal akureyri.net við Aldísi Ástu eftir að hún varð sænskur meistari síðastliðið vor:

Sænski meistarinn saknar Greifapítsu

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00

Steinhættu að halda með Liverpool

Orri Páll Ormarsson skrifar
20. febrúar 2026 | kl. 11:00

Olga örmagnast

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
19. febrúar 2026 | kl. 09:30

Furðutré innan gagnviðarættar

Sigurður Arnarson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hús dagsins: Grundargata 5

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. febrúar 2026 | kl. 06:00

Brodd-Helga þáttur

Jóhann Árelíuz skrifar
15. febrúar 2026 | kl. 06:00