Fara í efni
Pistlar

KA og Þór hefja leik í Bestu deildinni í dag

Kristófer Kristjánsson, einn hinna mörgu uppöldu Þórsara sem spreyta sig nú í efstu deild í fyrsta skipti, og Hallgrimur Mar Steingrímsson, leikja- og markahæsti leikmaður KA. Myndin er úr úrslitaleik Kjarnafæðismótsins á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik

Besta deild karla í knattspyrnu, efsta deild Íslandsmótsins, hófst á föstudagskvöldið en Akureyrarfélögin hefja bæði leik í dag. KA-menn taka á móti Stjörnunni á Greifavelli sínum sunnan við KA-heimilið en Þórsarar sækja Valsmenn heim að Hlíðarenda í Reykjavík. Báðir leikirnir hefjast kl. 17.00.

Akureyri á nú tvö lið í efstu deild í níunda skipti og í fyrsta skipti í 24 ár, eða síðan KA og Þór léku bæði í úrvalsdeildinni árið 2002.

KA leikur nú 10. árið í röð í deildinni, sem er besti kafli félagsins frá upphafi. „Áður var KA lengst sex ár í deildinni, frá 1987 til 1992. Liðið náði sínum næstbesta árangri árið 2022 þegar það hafnaði í öðru sæti. Fyrsti bikarmeistaratitillinn leit dagsins ljós eftir frækinn sigur á Víkingi, 3-1, árið 2024. KA er nú að hefja sitt 24. tímabil í efstu deild,“ sagði Víðir Sigurðsson, reyndasti íþróttamaður Íslands, í grein sem akureyri.net birti á föstudaginn.

Víðir sagði ennfremur: „Þór er hins vegar kominn í Bestu deildina á ný eftir ellefu ára dvöl í 1. deildinni, sem er lengsta fjarvera félagsins. Þetta verður átjánda tímabil Þórs í efstu deild en þar hefur félagið leikið lengst átta ár í röð, á árunum 1983 til 1990.“

Eftirfarandi upphitunargreinar hafa birst á akureyri.net síðustu daga:

  • Hallgímur Jónasson þjálfari KA:

„Finnst við vera með betri hóp en í fyrra“

  • Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs:

„Viljum gefa ungum leikmönnum tækifæri“


Komnir og farnir hjá Þór fyrir tímabilið

Komnir og farnir hjá KA fyrir tímabilið

Fjögur norðlensk lið í efstu deild 1988

Akureyrarlið í efstu deild í 48. skipti

Þór spáð neðsta sæti en að KA lendi enn í 7. sæti

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00

Hús dagsins: Hafnarstræti 35

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. apríl 2026 | kl. 22:00

Þegar lífið hægir á manni

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
07. apríl 2026 | kl. 08:00

Höfðingsskapur á Hofi

Jóhann Árelíuz skrifar
05. apríl 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30